Þau ábyrgu og við hin Aðalsteinn Árni Baldursson skrifar 23. ágúst 2022 11:01 „Óveðursskýin hrannast upp á vinnumarkaði þessa dagana. Þó svo kjaraviðræður séu ekki hafnar eru strax komnar fram hótanir um verkfallsátök og kröfur um viðamiklar aðgerðir ríkisstjórnar til að forða átökum.“ Svo mælir fyrrum framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Þorsteinn Víglundsson, í grein sem hann nefnir „Vinnumarkaður í úlfakreppu” og bætir síðan við: „Þegar fíflunum fjölgar um of í kringum okkur er stundum gott að líta í spegil.“ Þorsteinn segir ennfremur að sorglegt sé að sjá hina nýju forystu verkalýðshreyfingarinnar gera hverja þá tilraun sem gerð er til umbóta á vinnumarkaði að sérstöku skotmarki sínu.“ Þvílíkur hroki og lítilsvirðing í garð kjörinna fulltrúa verkafólks á Íslandi sem eru að fylgja eftir áherslum félagsmanna í kjaramálum. Svo það sé sagt, þá er afar mikilvægt fyrir Þorstein og skoðanabræður hans að hafa það í huga að ef Seðlabankinn, fyrirtæki, stjórnvöld og verslunareigendur halda áfram að varpa öllum kostnaðarhækkunum yfir á launafólk, heimili og neytendur þá verður verkalýðshreyfingin og launafólk að bregðast við því með viðeigandi hætti. Annað er ekki í boði. Það er heldur ekki í boði að taka upp norræna samningamótelið á Íslandi sem fylgjendur auðvaldsins hafa talað fyrir til að draga vígtennurnar úr verkalýðshreyfingunni. Nær væri fyrir frændur vora á Norðurlöndunum að horfa til Íslands þar sem félagsaðild að stéttarfélögum er sú mesta í heiminum. Fyrirkomulagið á íslenskum vinnumarkaði er útflutningsvara sem ætti að vera öðrum þjóðum góð fyrirmynd. Því miður virðist sem menn eins og Þorsteinn hafi skammtímaminni og kalli því úlfur, úlfur um leið og fulltrúar láglaunalaunafólks tala fyrir kjarabótum fyrir hönd sinna umbjóðenda. Margir eru á því að Lífskjarasamningarnir sem gerðir voru árið 2019, hafi verið með þeim merkilegri sem gerðir hafa verið í áratugi. Hinir róttæku sem Þorsteinn óttast svo mikið fóru fyrir þeim samningum. Þar á meðal sá sem þetta skrifar. Reyndar er það löngu hætt að koma á óvart að þeir sem mæla hvað harðast gegn kjarabótum séu þeir sem hæst hafa launin og búa við mestu velmegunina. Þessir sömu menn sjá ekki ástæðu til að setjast niður og skrifa greinar um ójöfnuð í þjóðfélaginu, arðgreiðslur og ofurlaun elítunar sem er án efa krabbameinið í íslensku samfélagi. Afleiðingarnar liggja fyrir. Vaxandi ójöfnuður hefur læst sig í íslenskt samfélag líkt og illgresi í akur. Aukin misskipting, samþjöppun valds og auður hinna ríkustu vex og dafnar meðan lífskjör almennings standa í stað eða versna, ekki síst barnafjölskyldna, láglaunafólks og þeirra sem minna mega sín. Hvernig er hægt að leggjast gegn því að allir þegnar þessa lands geti lifað með reisn? Það á enginn að þurfa að hokra í fátækt í okkar ríka landi. Vissulega eru sterk fjármálaöfl í þjóðfélaginu sem skauta fram hjá jöfnuði, öfl sem dásömuðu stjórnvöld þegar þau seldu nýlega hlut ríkisins í Íslandsbanka á undirverði upp á nokkra milljarða króna til valins hóps kaupsýslumanna. Þeir kættust á leið sinni í bankann, tóku snúning fyrir fyrsta hanagal og seldu hlut sinn strax aftur með ofsa gróða. Á kantinum hlógu ráðgjafarnir og struku belginn, drjúgir með sitt, enda greiddum við þeim litlar 700 milljónir svo auðmennirnir útvöldu gætu hagnast um milljarða á þessum viðskiptum. Annað gott dæmi um birtingarmynd spillingarinnar sem þrífst í samfélaginu eru þeir sem sjá ekkert að því að raka að sér peningum sem eru ekki þeirra. Ég vísa hér til viðskipta kvótagreifana svokölluðu, sem reglulega leysa til sín milljarða arðgreiðslur af sölu aflaheimilda í eigu þjóðarinnar. Já, það er sannarlega rétt hjá Þorsteini, þeir sem sjá ekki þessa græðgisvæðingu er hollt að líta í spegil, hugsanlega leynast fíflin þar. Markmið síðustu Lífskjarasamninga sem byggðu á krónutöluleið var meðal annars að auka jöfnuð og vinna gegn spillingu á Íslandi með sérstaka áherslu á að verja kaupmátt launa, vinna gegn verðbólgu og tryggja lægri vexti til frambúðar. Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar sem fylgdi kjarasamningunum fólst í skattalækkunum, vaxtalækkunum, ákveðnum frystingum þjónustugjalda ríkis og sveitarfélaga, hækkun barnabóta, lengingu fæðingarorlofs, svo ekki sé talað um sértækar aðgerðir er sneru að húsnæðismálum ungs fólks. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar voru að umfangi um 80 milljarðar á gildistímanum til að styðja við markmið um stöðugleika og bætt kjör launafólks. Yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar gengu að mestu leiti eftir en verða endurskoðaðar í komandi kjaraviðræðum. Aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands hafa þegar lagt fram sína kröfugerð. Ekki þarf að koma á óvart að sambandið leggur megin áherslu á áframhaldandi hækkun lægstu launa og að tryggja kaupmátt launafólks. Við gerð síðustu kjarasamninga var horft til þess að samningarnir leiddu af sér lækkun vaxta, sú krafa stendur áfram. Sambandið mun ekki una því að vaxandi verðbólgu vegna aðgerðaleysis stjórnvalda í húsnæðismálum, og erlendra hækkana verði sett á herðar verkafólks. Nú eru uppi þær aðstæður í samfélaginu að aðkoma stjórnvalda að kjarasamningum mun skipta miklu máli við gerð þeirra. Stóraukin verðbólga, miklar verðhækkanir og mikill vandi á húsnæðismarkaði kalla á að stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins taki höndum saman með samtökum launafólks að tryggja kaupmátt, húsnæði fyrir alla og öfluga grunnþjónustu um land allt. Um þessar mundir heyrist gamalkunnuglegt væl frá Samtökum atvinnulífsins og reyndar stjórnvöldum líka um að ekkert sé til skiptanna og því ekkert um að semja í komandi kjaraviðræðum í haust. Stundum hefur maður það á tilfinningunni að þeir hinir sömu séu staddir á allt öðrum stað í tilverunni og gefi sér ekki tíma til að lesa fréttir fjölmiðla þar sem sjá má þessar nýlegu fyrirsagnir: Bankarnir þrír högnuðust um 17,9 milljarða Sjávarútvegurinn greiddi sér 21,5 milljarða króna í arð í fyrra Rekstur áliðnaðarins hérlendis hefur aldrei gengið eins vel og nú Kvika hagnast um 1,7 milljarða Mesti hagnaður KS frá upphafi Methagnaður hjá N1, Krónunni og ELKO Methagnaður hjá Skeljungi Methagnaðar útgerðarfyrirtækja Best launuðu hagsmunaverðirnir með hátt í fjórar milljónir króna á mánuði í fyrra Mánaðartekjur framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins hærri en árslaun þeirra lægst launuðu Dettur einhverjum heilvita manni í hug að slík fyrirtæki geti ekki hækkað laun starfsmanna á lægstu launum. Viðhorf eigenda þeirra fyrirtækja sem eiga í hlut á ekki bara að snúast um að græða og græða heldur greiða mannsæmandi laun og virða þannig framlag starfsmanna á hverjum tíma til aukins hagvaxtar í landinu. Vissulega er það ekki nýtt að atvinnurekendur og frjálshyggjuliðið hafi hátt í aðdraganda kjarasamninga. Fyrir síðustu samninga árið 2019 fór áróðursmaskínan gegn hækkun lægstu launa á yfirsnúning. Samtök atvinnulífsins vöruðu við uppsögnum, samdrætti og gjaldþrotum næðu kröfur stéttarfélaganna fram að ganga. Ekkert af þessu gekk eftir. Þá var stórbrotið að lesa í blöðum og öðrum miðlum að forystumönnum í verkalýðshreyfingunni væri líkt við hryðjuverkamenn. Fyrir mér er Pútín Rússlandsforseti hryðjuverkamaður, en ekki við sem förum fyrir kjarabaráttu verkafólks. Nýja forystan svokallaða eða hinir róttæku sem fóru fyrir síðustu Lífskjarasamningum eru ekki að kalla eftir átökum vinnumarkaði. Þau hafna hins vegar brauðmolavæðingu elítunar, nú skal skipt jafnt, við þurfum jú öll að borða. Sé tekið mið af fyrirsögnum fjölmiðla er nóg til skiptanna fyrir alla um þessar mundir og rúmlega það. Það er von mín og trú að samstaða náist um að framlengja Lífskjarasamninginn á svipuðum nótum og núverandi samningsforsendurnar byggja á. Þannig getum við stuðlað að sátt í samfélaginu. Láglaunafólk á ekki eitt að bera ábyrgð á því að halda uppi hagvexti í landinu, ekki síst á tímum þegar háar arðgreiðslur fljóta út úr fyrirtækjum til hluthafa þeirra líkt og aurskriður af verstu gerð. Höfundur er formaður Framsýnar stéttarfélags. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Aðalsteinn Árni Baldursson Kjaramál Tekjur Mest lesið Málað sig út í horn Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Brennt barn forðast eldinn Hrefna Sigurjónsdóttir Skoðun Uppbygging almannahagsmuna á Íslandi Hlynur Már Vilhjálmsson Skoðun Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Hátt reitt til höggs Hjálmar Jónsson Skoðun Varnir gegn gagnagíslatökum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Græðgi Kolbrún Bergþórsdóttir Skoðun Árið er 1990 Rebekka Hilmarsdóttir Skoðun Núna er næst! Bjarney Bjarnadóttir,Jóhanna M. Þorvaldsdóttir Skoðun Hvers vegna getur ein greiðsla á ári frá TR verið góður kostur? Sigurjón Skúlason Skoðun Skoðun Skoðun Hátt reitt til höggs Hjálmar Jónsson skrifar Skoðun Brennt barn forðast eldinn Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Varnir gegn gagnagíslatökum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Uppbygging almannahagsmuna á Íslandi Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar Skoðun Málað sig út í horn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Full orkuskipti ríkisflota og samgönguþjónustu fyrir 2030 Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Einelti er veruleikabrenglun Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun „Lýtalaus íslenska“ er ekki til Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Hvatning til mótshaldara Landsmóts hestamanna Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áróður Kremls gegn Úkraínu og NATO Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Að gefnu tilefni Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Það er ákvörðun að beita mannvonsku Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Löng barátta XD fyrir jafnrétti og frelsi Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Árið er 1990 Rebekka Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Létt Borgarlína og bráðavandi umferðar Elías B. Elíasson,Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Bestun Seðlabankastjóra Karl Guðlaugsson skrifar Skoðun Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Úr samkeppni í einokun? Sigríður Margrét Oddsdóttir,Anna Hrefna Ingimundarsdóttir skrifar Skoðun Að mála sig út í horn Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Verst fyrir fámennustu ríkin Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað getum við tekið á móti mörgum? Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Yazan, Kant og siðleg breytni á Íslandi Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Dauðinn og skattarnir skrifar Skoðun Áskorun ÖBÍ og Þroskahjálpar til ráðherra og þingmanna Alma Ýr Ingólfsdóttir,Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Flug frá Keflavík til Köben tekur styttri tíma en meðaltími nauðgunar Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvers vegna getur ein greiðsla á ári frá TR verið góður kostur? Sigurjón Skúlason skrifar Skoðun Í gíslingu Ríkislögmanns, samtryggingar og spillingar Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar Skoðun Þegar andi Mussolini svífur yfir vötnunum og titlar verða langir Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Af málathöfnum Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Etanól í glansumbúðum Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Sjá meira
„
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Áskorun ÖBÍ og Þroskahjálpar til ráðherra og þingmanna Alma Ýr Ingólfsdóttir,Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar
Skoðun Flug frá Keflavík til Köben tekur styttri tíma en meðaltími nauðgunar Guðný S. Bjarnadóttir skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun