Lífið

„Áhugavert og flókið að fara inn í samband á þessu tímabili“

Elísabet Hanna skrifar
Parið var í hlaðvarpsþættinum Betri helmingurinn með Ása.
Parið var í hlaðvarpsþættinum Betri helmingurinn með Ása. Aðsend

Listamaðurinn Logi Pedro Stefánsson og Hallveig Hafstað Haraldsdóttir byrjuðu saman fyrir nokkrum árum eftir að hafa kannast við hvort annað í gegnum sameiginlega vini. Síðan þá hafa þau byggt upp fjölskyldu sína þar sem listin spilar einnig stórt hlutverk.

Parið lýsir skemmtilega fyrsta stefnumótinu. Þá bauð Logi Hallveigu út að borða og matseðillinn hljóðaði upp á níu rétti.

„Við gátum ekki farið fyrr en eftir þrjá tíma því við vorum að fá rétti allan tímann. Þannig ef þetta hefði verið vandræðalegt þá hefðum við bara verið í þögn,“ segir Hallveig. 

Sem betur fer var stefnumótið langt frá því að vera vandræðalegt. 

Seldi bílinn eftir örlagarík veikindi

Þegar þau byrjuðu að hittast átti Logi bíl sem var honum afar kær. Örlagaríkt ostrukvöld varð til þess að skipta þurfti bílnum út. Logi lýsir því að hann hafi orðið fárveikur af ostruátinu og þurft að fara upp á spítala. 

„Hallveig gat ekkert keyrt mig og gat ekki gert neitt því hún kunni ekki á bílinn,“ segir Logi.

„Ég kann ekki á beinskiptan bíl, ég er þessi týpa sko,“ segir Hallveig og hlær. 

Þá hafði Logi fengið E. coli vírus eftir ostrurnar. Atvikið varð til þess að Logi seldi heittelskaða bílinn sinn.

Klippa: Betri helmingurinn - Logi Pedro Stefánsson og Hallveig Hafstað Haraldsdóttir

Öll pör þurfa að takast á við áskoranir. Logi var ungur faðir þegar þau Hallveig kynntust.

„Bjartur sonur minn fæðist þarna 1. október 2017. Ég hafði verið einhleypur síðan í janúar eða febrúar það árið svo ég var búinn að vera einhleypur í svona ár þegar ég kynntist Hallveigu.“ 

Hann segir að það hafi verið svolítið flókið að hefja nýtt samband á þessum tímapunkti. En líka áhugavert og þannig sé lífið. Það haldi alltaf áfram.  

Voru ekkert að flýta sér

En parið gaf sér tíma og steig eitt skref í einu.

„Hallveig kynnist Bjarti um sumarið. Þetta er svo stór ákvörðun þegar maður kynnir börnin sín fyrir einhverjum nýjum. Við vorum bara ekkert að flýta okkur að því,“ segir Logi. 

Þau eru þakklát fyrir að Hallveig hafi getað verið hluti af lífi Bjarts svo lengi.  Hallveig minnir á að hún hafi aðeins verið 21 árs á þessum tíma og það hafi verið stórt skref að fara í samband með ungum föður. Hún hafi þó ekki miklað nýja hlutverkið fyrir sér.

„Við vorum bæði bara svo ung,“ segir Logi þegar hann horfir til baka.

Föðurhlutverkið breytti forgangsröðuninni

Logi segir föðurhlutverkið hafa gefið honum gríðarlega mikið og kennt honum að nálgast starf sitt sem listamaður á nýjan hátt. 

„Það var svo geggjað að eignast Bjart og fá einhvern veginn ógeðslega mikið rými til þess að þurfa að pæla númer eitt, tvö og þrjú í einhverjum öðrum,“ segir Logi. 

Hann hafi stækkað svo mikið sem manneskja að þurfa að hætta á sjálfshátíð, þar sem maður setur sjálfan sig í fyrsta sæti, því maður sé foreldri. 

Mikilvægt að finna jafnvægið

Logi segir Hallveigu hafa verið í aðalhlutverki á heimilinu undanfarið því annirnar hafi verið svo miklar hjá honum. 

„Hún tekur þungan af því að sinna hlutunum sem ég get ekki verið að sinna,“ segir Logi sem hefur verið að klára sjónvarpsseríu, koma fram og í náminu. 

Barnalán varð hjá parinu í fyrra þegar Bjartur eignaðist lítinn bróður.

„Ég upplifi það kannski núna í fyrsta sinn þegar við erum með barn sem býr ekki á tveimur heimilum, sem er alltaf hjá okkur að þá þýðir það ekki að ég geti tekið vinnutörn þegar Bjartur er hjá mömmu sinni,“ segir Logi. 

„Ég verð einhvern veginn að finna einhverja jöfnu sem gengur upp fyrir alla núna.“

Þáttinn má heyra í heild sinni hér að neðan:


Tengdar fréttir

„Við erum komin til þess að hafa mök“

Kyn­fræðing­ur­inn Sig­ríður Dögg Arn­ar­dótt­ir og Sæv­ar Eyj­ólfs­son gengu nýlega í hjónaband þar sem dragdrottning í New York gaf þau saman eftir að hafa byrjað sambandið sitt í gegnum Tinder reikning vinkonu Siggu Daggar sem „matchaði“ við hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.