Madrídingar unnu stórsigur á útivelli

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Real Madrid vann sannfærandi sigur í kvöld.
Real Madrid vann sannfærandi sigur í kvöld. Manuel Queimadelos/Quality Sport Images/Getty Images

Spánarmeistarar Real Madrid unnu sannfærandi 1-4 sigur er liðið heimsótti Celta Vigo í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Karim Benzema skoraði fyrsta mark Madrídinga á 14. mínútu af vítapunktinum áður en Iago Aspas jafnaði metin fyrir heimamenn tíu mínútum síðar af vítapunktinum á hinum enda vallarins.

Luka Modric kom gestunum svo í forystu stuttu fyrir hálfleikshlé eftir stoðsendingu frá David Alaba og staðan því 1-2 þegar gengið var til búningsherbergja.

Vinicius Jr. bætti þriðja marki Madrídinga við snemma í síðari hálfleik áður en Federico Valverde gerði endanlega út um leikinn með marki á 66. mínútu.

Edin Hazard fékk svo tækifæri til að skora fimmta mark liðsins þegar hann fór á vítapunktinn stuttu fyrir leikslok, en hann lét Agustin Marchesin, markvörð Celta Vigo, verja frá sér.

Niðurstaðan því 1-4 sigur Madrídinga sem hafa nú unnið báða leiki sína í upphafi tímabils.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira