Lífið

Beyoncé efst á lagalista Barack Obama

Elísabet Hanna skrifar
Barack Obama virðist vera í góðum gír í sumar ef marka má lagalistann sem hann deildi.
Barack Obama virðist vera í góðum gír í sumar ef marka má lagalistann sem hann deildi. Getty/Chip Somodevilla

Fyrrum Bandaríkjaforsetinn Barack Obama hefur deilt sumarlagalista frá sér með fylgjendum sínum. Það er engin önnur er Beyoncé sem er efst á listanum en á honum má einnig finna listamenn á borð við Harry Styles, Prince, Rosalíu, Bruce Springsteen, Fatboy Slim og Rihönnu.

„Á hverju ári er ég spenntur fyrir því að deila sumarlagalistanum mínum því ég læri um svo marga nýja listamenn út frá svörum ykkar. Það er dæmi um það hvernig tónlist getur í raun leitt okkur öll saman,“ sagði Obama áður en hann lagði fram spurninguna:

„Hér er það sem ég hef verið að hlusta á í sumar. Hvaða lögum myndir þú bæta við?“

Ef marka má listann sem hann deildi virðist Obama vera í góðum gír þetta sumarið og vera kominn með vel valin lög til þess að dilla sér við. 

Deildi einnig bókum sumarsins

„Ég hef lesið nokkrar frábærar bækur á þessu ári og langaði að deila nokkrum af mínum uppáhalds. Hvað hefur þú verið að lesa í sumar?“ Setti hann einnig inn í færslu skömmu áður. Hann hefur verið að fá fjöldann allan af svörum þegar kemur að tónlistinni og bókunum og er eflaust kominn með innblástur fyrir lagalista framtíðarinnar.


Tengdar fréttir

Obama líkti Trump við brjálaðan frænda

Barack Obama fyrrverandi forseti Bandaríkjanna kom fram á kosningafundi í Pennsylvaníu í gær þar sem hann fór hörðum orðum um eftirmann sinn í Hvíta húsinu, Donald Trump.

Treyja Barack Obama sló met LeBron James

Fyrrum Bandaríkjaforseti Barack Obama setti nýtt met á dögunum. Reyndar ekki hann sjálfur heldur gömul keppnistreyja hans frá körfuboltaferlinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.