Skoðun

Af fæðingarhreppum og Kúbu norðursins

Erna Bjarnadóttir skrifar

Í nýjasta tölublaði Vísbendingar (26. tbl.) er að finna grein eftir Dr. Gylfa Magnússon, prófessor og fyrrverandi ráðherra, um samsetningu þjóðarinnar og fleira því tengt. Samkvæmt opinberum tölum Hagstofu Íslands voru íbúar hér á landi 368.792 þann 1. janúar 2021. Þar af voru 51.333 erlendir ríkisborgarar. Gylfi gerir að umfjöllunarefni að þau sem hafa erlent ríkisfang séu útilokuð frá þátttöku í stjórnmálum á landsvísu. Það er vitaskuld ekkert sér íslenskt að kosningaréttur til þings er bundinn við ríkisfang. Sumstaðar er jafnvel gengið lengra eins og gerð krafa um að kjósandinn hafa fasta búsetu í landinu.Alþingi er löggjafarsamkoma og lög eru í eðli sínu langtíma stefnumörkun. Er það ekki einmitt það sem mikilvægi ríkisborgararéttar felur í sér, að geta verið fullur þátttakandi í stefnumótun þess samfélags sem einstaklingurinn tekur sér búsetu í. Þetta snýst ekki einvörðungu, þó mikilvægt sé, um sjálft vegabréfið.

Furðuskrif prófessorsins um „fæðingarhreppa“ sitjandi þingmanna vekja einnig athygli. Er það eitthvað sérstaklega skrýtið að sex núverandi þingmanna séu fæddir á Akranesi? Í fyrsta lagi er vandséð hvaða áhrif það hefur (önnur en þau sem tengjast þá stöðu himintungla) að fæðast á tilteknum stað. Í öðru lagi er og hefur lengi verið á Akranesi ein af fáum fullbúnum fæðingarstofum á landinu. Þangað sækja konur af Vesturlandi, Norðurlandi sem og víða af Höfuðborgarsvæðinu, þjónustu. Það er sjálfstætt umfjöllunarefni hve fæðingarþjónustu hefur farið aftur á landsbyggðinni.

Samsetning Alþingis

Gylfi fjallar síðan um ald­urs­dreif­ingu þing­manna og ályktar að miðað við aldurssamsetningu kjósenda ættu alþing­is­menn yfir sjö­tugu að vera 8. Á sama hátt ættu alþing­is­menn undir þrí­tugu að vera 14, tilsvarandi því að 22 pró­sent kjós­enda eru á þeim aldri.

Sú er þessar línur ritar hyggst ekki gera lítið úr því að það sé mikilvægt að á Alþingi sitji fólk með sem víðtækastan bakgrunn og reynslu. En varla er það tilviljun að ekki eru 8 þingmenn eldri en sjötugir. Staðreyndin er sú að það er krefjandi starf að sitja á þingi, vinnudagurinn getur verið langur og mörg mál sem þarf að setja sig inn í. Almennt fer fólk á eftirlaun á þessum aldri, sinnir áhugamálum, félagsmálum og afkomendum eftir því sem hugurinn og starfsgeta stendur til. Fólk undir þrítugu er svo enn í skóla, að koma sér upp fjölskyldu, heimili o.s.frv.

Kjarni málsins er sá að þau sem gefa kost á sér til þingmennsku og eru þarna á milli í aldri (þorri þingmanna) verða vitanlega að líta til þessara í hópa eins og annarra í störfum sínum, enda hafa þau sjálf gengið í gegnum tímabil ungdómsáranna og eiga eða hafa átt börn, foreldra og/eða ættingja í hinum ýmsu hópum samfélagsins, þar á meðal þessum. Slíkt er hluti þeirrar reynslu sem fólk aflar sér í lífinu og það byggir á í störfum sínum hvort sem er á Alþingi eða annarsstaðar.

„Kúba norðursins“

Að lokum gerir Gylfi tengingu trúarbragða og stjórnmála að umtalsefni og segir að sáralítil umræða sé um trú stjórnmálamanna. Á Íslandi hafi nán­ast allir verið í þjóð­kirkj­unni lengi vel en jafn­vel eftir að það breytt­ist hafi sára­lítil umræða verið um trú stjórn­mála­manna. Ég hefði haldið að það væri jákvætt að vera ekki að gera þetta að sérstöku umtalsefni. Varla viljum við hvetja til þess að þjóðin né heldur þingmenn séu dregin í dilka með þeim hætti.

Flest okkar sem fædd erum á síðustu öld, muna þegar Geir H. Haarde bað Guð að blessa Ísland haustið 2008. Okkur var þá brugðið því það lýsti fyrst og síðast alvarleika ástandsins. Gylfi ályktar síðan að kannski hafi forsætisráðherrann samt verið bæn­heyrð­ur, „…að minnsta kosti lenti hag­kerfið á löpp­unum á end­an­um,“ skrifar hann. Já hver man ekki yfirlýsingar eins og að við myndum enda sem „Kúba norðursins“ ef við sættum okkur ekki við að sitja og standa eins og útlendingar kröfðust af okkur. En getur ekki einmitt verið að hagkerfið hafi staðið þetta högg af sér af því að hópur fólks ákvað í stað þess að sitja og þiggja það sem að var rétt, að ganga þá fram fyrir skjöldu og setja þeim öflum stólinn fyrir dyrnar. Það er nefnilega dálítið þannig að Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir.

Höfundur er varaþingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi og mamma, amma, dóttir og frænka.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×