Erlent

Lúðra­sveit veittist að manni sem kastaði rusla­tunnu í með­limi

Bjarki Sigurðsson skrifar
Hér sést þegar maðurinn kastar tunnunni í átt að meðlimum og svo þegar sveitin hefur safnast saman við húsið.
Hér sést þegar maðurinn kastar tunnunni í átt að meðlimum og svo þegar sveitin hefur safnast saman við húsið. Twitter

Lúðrasveit í Norður-Írlandi veittist í dag að karlmanni sem kastaði ruslatunni í meðlimi sveitarinnar er þeir tóku þátt í skrúðgöngu. Maðurinn lokaði sig inni og brutu meðlimir sveitarinnar rúðu á fjölbýlishúsinu sem maðurinn býr í.

Lúðrasveitin var að taka þátt í skrúðgöngu til þess að fagna 12. júlí en dagurinn er haldinn hátíðlegur í Norður-Írlandi ár hvert. Þá er sigri Vilhjálms III á Jakobi II fagnað en Vilhjálmur var mótmælendatrúar og Jakob kaþólikki.

Maðurinn sem kastaði tunnunni í meðlimi lúðrasveitarinnar hafði flaggað írska fánanum en mikill meirihluti Íra eru kaþólikkar.

Myndband náðist af atvikinu og hefur það farið í mikla dreifingu á samfélagsmiðlum. Eftir að maðurinn kastaði tunnunni reyndu meðlimir lúðrasveitarinnar að komast til hans en hann náði að loka sig inni í fjölbýlishúsi. Þá köstuðu meðlimirnir annarri stærri tunnu í rúðu á húsinu en að sögn nágrannans sem tók myndbandið var tunnunni kastað í vitlausan glugga.

Lögreglumenn höfðu gengið eftir götunni við hlið lúðrasveitarinnar og voru þeir fljótir að skarast í leikinn. Sá sem kastaði tunnunni í gluggann virðist hafa sloppið en tunnan sjálf var sett upp í lögreglubíl og ekið með hana á brott.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×