Veiði

Sex laxa opnun í Hítará

Karl Lúðvíksson skrifar
Árni Stefánsson með flottan lax úr Breiðunni í Hítará
Árni Stefánsson með flottan lax úr Breiðunni í Hítará

Veiði er hafin í Hítará á Mýrum og fyrstu tölur af opnun gefa góð fyrirheit inní sumarið.

Það var árnefnd Hítarár sem opnaði ána og þeir fengu sex laxa sem þykir bara nokkuð lagleg opnun. Hollið sem tók við er við veiðar núna og er komið með nokkra laxa á land. Veiðivísir heyrði í Árna Stefánssyni sem er einmitt í því holli en hann var búinn að landa einum af Breiðunni á Rauðan Frances kón og sagði að það væri töluvert líf í veiðistöðunum neðan við hús en það er Kverkin, Breiðan og Túnstrengir.

Þetta er flott opnun í ánni og við fylgjumst spennt með næstu dögum. Nú styttist í næstu opnanir í Elliðaánum, Langá og fleiri ám og það verður spennandi að sjá hvernig gengur.






×