Hetjan Hjálmar framlengir á Hlíðarenda Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. júní 2022 15:30 Hjálmar verður áfram á Hlíðarenda. Vísir/Bára Dröfn Hjálmar Stefánsson verður áfram á mála hjá Íslandsmeisturum Vals í körfubolta. Hann framlengdi samning sitt við félagið til tveggja ára. Frá þessu var greint á samfélagsmiðlum Vals.
Hjálmar kom til Vals fyrir síðasta tímabil og fór mikinn með liðinu í Subway deild karla. Þá sérstaklega í úrslitaeinvíginu gegn Tindastól en Hjálmar var maður leiksins þegar titillinn sjálfur var undir í oddaleiknum. Skoraði hinn 26 ára gamli Hjálmar 24 stig í oddaleiknum og sá til þess að Valur landaði hinum eftirsótta Íslandsmeistaratitli. Eftir tímabilið var Hjálmar orðaður við heimahaga sína í Hafnafirði en hann er uppalinn Haukamaður. Hann hefur hins vegar ákveðið að vera um kyrrt á Hlíðarenda. Í 33 leikjum fyrir Val á síðasta tímabili skoraði Hjálmar átta stig að meðaltali í leik, tók fjögur fráköst og gaf eina stoðsendingu. „Mér hefur liðið einkar vel eftir að ég kom í Val. Andinn í liðinu er frábær og náttúrulega ótrúlega gaman að vinna titilinn í fyrra. Ég hlakka til næsta tímabils og vonandi getum við endurtekið leikinn,“ sagði Hjálmar á samfélagsmiðlum Vals. Þá kemur þar einnig fram að nánari fréttir af leikmannamálum séu væntanlegar á næstu dögum.
Körfubolti Subway-deild karla Valur Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sjá meira