Skoðun

Viltu með mér vaka?

Halla Hrund Logadóttir skrifar

Bjartsýnin skýtur rótum í beðum hugans á björtustu dögum ársins. Og um leið og við böðum okkur í mjúkri birtu miðnætursólarinnar og hlökkum til ferðalaga sumarsins tendrast ást okkar á landinu. Og öllu því sem það býr yfir. Vatnið í ánni, orkan í náttúrunni og ferska loftið sem fyllir lungun. Við finnum tært í huga og hjarta að yfir því viljum við vaka og sofa. Vernda og nýta þannig að framtíðarkynslóðir geti verið stoltar af. Ánægðar með forgangsröðun og uppskeru forvera.

Í áratugi hefur þjóðin vakið yfir framtíð sinni, fjárfest í auðlindum og nýtt á ólíka vegu. Þar er orkunýting engin undantekning. Hún hefur fært okkur hita fyrir heimilin, ljós í hvert hús og mótað atvinnuvegi á fjölbreytta vegu. Í dag eru loftslagsmálin lykilmál orkumálanna og þar er Ísland í einstakri stöðu. Við getum, með réttum áherslum, orðið fyrsta þjóðin í heiminum til að reka heilt samfélag á grænni orku ef við klárum orkuskiptin. Slíkur árangur yrði ólympíugull í grein sem skiptir alla heimsbyggðina máli og hefði jafnframt margfeldisáhrif fyrir samvinnu og samkeppnishæfni Íslands.

Orkustofnun er vakin og sofin yfir því að styðja stjórnvöld við að uppfylla loftslagsskuldbindingar sínar í tæka tíð og styðja þar með við lykilmarkmið orkustefnu Íslands. Þar þarf margt að koma til, meðal annars að orkuframleiðsla skili sér í orkuskiptaverkefni. Það er í dag ekki sjálfsagt en ýmsar leiðir eru færar ef orkan á fremur að rata þá braut: Eigendastefna opinberra fyrirtækja, útboðsleiðir í þágu orkuskiptaverkefna, útfærslur leyfisveitinga, hvatakerfi í fjárfestingum og áfram mætti telja.

Þessar leiðir eru eingöngu brot af matseðli möguleika sem stjórnvöld þurfa að rýna hið fyrsta, velja úr, útfæra og innleiða, eigi loftslagsmálin að vera forgangsmál orkumálanna og koma okkur í mark. Samhliða er nauðsynlegt að tryggja orkuöryggi almennings betur í lögum ásamt því að afgreiða rammaáætlun, sem nær yfir ólíka nýtingu auðlinda okkar og skiptir miklu máli fyrir jafnvægi í nálgun og heildarsýn.

Verum vakandi og vinnum saman að því að fá ólympíugull orkuskiptanna í hús með nýtni og nýsköpun að leiðarljósi. Fyrir komandi kynslóðir sem njóta landsins og ávaxta þess á björtum sumarnóttum um ókomna tíð.

Höfundur er orkumálastjóri.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×