Lífið samstarf

Skandinavískir straumar á borðstofudögum í Vogue

Vogue fyrir heimilið
Vörulínan frá sænska fyrirtækinu Rowico er sérstaklega falleg og stílhrein.
Vörulínan frá sænska fyrirtækinu Rowico er sérstaklega falleg og stílhrein.

Borðstofudagar standa nú yfir í Vogue fyrir heimilið. Tuttugu prósenta afsláttur er af öllum borðstofuborðum og stólum og hægt að gera frábær kaup.

„Borðstofudagarnir fara vel af stað og hér er búið að vera mikið fjör. Við eigum gríðarlega mikið og skemmtilegt úrval borðstofuhúsgagna og búðin lítur frábærlega vel út. Ég hvet fólk til að kíkja við,“ segir Steinn Kári Ragnarsson hjá Vogue fyrir heimilið.

Skandinavískir straumar svífa yfir vötnum í Vogue. Stílhrein form, eik, akasíuviður, bast og svart stál er áberandi í borðstofulínum í ár en Vogue er meðal annars með úrval húsgagna frá sænska framleiðandanum Rowico. Rowico leggur mikla áherslu á gæði og fágað útlit og húsgögninn smellpassa við íslensk heimili.

„Sumarið er góður tími til að fríska upp á heimilið, mála og endurnýja húsgögn. Það er því kjörið að nýta sér tilboðsdagana og tryggja sér hágæða hönnun á góð verði,“ segir Steinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.