Erlent

Opin­ber­uð­u hverj­ir þróa geimb­ún­ing­a fram­tíð­ar­inn­ar

Samúel Karl Ólason skrifar
Tölvuteiknuð mynd af geimfara halda á tunglgrjóti og öðrum taka mynd. Ekki fylgir myndinni hverjum fremri geimfarinn á að vera að sýna tunglgrjótið.
Tölvuteiknuð mynd af geimfara halda á tunglgrjóti og öðrum taka mynd. Ekki fylgir myndinni hverjum fremri geimfarinn á að vera að sýna tunglgrjótið. NASA

Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur gert samninga við Axiom Space og Collins Aerospace um þróun og framleiðslu geimbúninga og búnaðar til geimgangna. Þennan búnað eiga meðal annars geimfarar Artemis-áætlunarinnar að nota á braut um jörðu og á yfirborði tunglsins.

Til stendur að prófa búninga í tilraunageimgöngu frá Alþjóðlegu geimstöðinni árið 2025. Þá eiga geimfarar að nota þá við Artemis 3 geimskotið, sem verður fyrsta mannaða geimskotið til tunglsins frá Appollo 17 árið 1972.

Stefnt er á að Artemis 3 fari fram 2025 eða 2026 en vonir eru bundnar við að hægt verði að skjóta Artemis 1 á loft geti farið fram á næstu mánuðum. Það felst í því að senda ómannað geimfar á braut um tunglið og til baka.

Þegar kemur að geimskotum eru allar áætlanir og dagsetningar háðar miklum breytingum.

Sjá einnig: Öflugasta eldflaugin aftur á skotpall fyrir tunglskot

Fyrirtækin tvö eiga að framleiða búninga eftir ákveðnum skilmálum NASA varðandi hvað geimfarar eiga að geta gert í þeim og hvaða aðstæður þeir eiga að þola. Samningarnir eru metnir á 3,5 milljarða dala og gilda til loka ársins 2034.

Samkvæmt tilkynningu frá NASA mun stofnunin þó geta notað þá tækni sem verður til við þróun geimbúninganna í framtíðinni.

Áhugasamir geta horft á blaðamannafund sem fór fram í gærkvöldi hér að neðan.

Collins Aerospace hefur lengi framleitt geimbúninga fyrir NASA og hannað fyrirtækið meðal annars geimbúningana sem notaðir voru á tunglinu á árum áður. Í frétt Space.com segir þó að Axiom Space séu nýgræðingar á þessu sviði. Umsvif Axiom hafa aukist verulega á undanförnum árum og skaut fyrirtækið til dæmis ferðamönnum til geimstöðvarinnar í apríl.

Þar að auki vilja forsvarsmenn Axiom koma kvikmyndaveri fyrir á braut um jörðu á næstu árum.

Sjá einnig: Vilja koma kvikmyndaveri út í geim á næstu árum

Þróun geimbúninga fyrir Artemis-áætlunina hefur tafist verulega, eins og annað sem tengist áætluninni, en innri endurskoðandi NASA birti í fyrra skýrslu þar sem fram kom að ómögulegt yrði að lenda aftur á tunglinu árið 2024 eins og til stóð og var það vegna geimbúninganna.

Þeir búningar sem eru nú notaðir við geimgöngur í geimstöðinni voru hannaðir fyrir 45 árum síðan. Árið 2019 kynnti NASA svo nýjustu búningana sem nota á til ferða til tunglsins og lengra út í sólkerfið.

Sjá einnig: NASA sýndi nýja kynslóð geimbúninga

Þróun nýju geimbúninganna er ekki langt á veg komin en í yfirlýsingu frá Collins Aerospace segir að þeir eigi að vera léttari en eldri búningar og bjóða upp á mun meiri hreyfigetu og lengri geimgöngur. Hönnun fyrirtækisins er sögð gera geimförum af öllum líkamsgerðum kleift að fara í geimgöngur og á að vera auðvelt að betrumbæta búninganna í gegnum árin.

„Geimfarar sem eru að fara aftur til tunglsins og lengra þurfa geimbúninga sem eru eins nútímalegir og verkefni geimfaranna,“ er haft eftir Dan Burbank, einum af yfirmönnum Collins og fyrrverandi geimfara hjá NASA.


Tengdar fréttir

Hættu æfingu fyrir tunglferð vegna bilunar

Vísindamenn og verkfræðingar Geimvísindastofnunnar Bandaríkjanna lýstu því yfir í kvöld að búið væri að hætta við æfingu fyrir fyrstu tunglferð Artemis-áætlunarinnar. Það var gert eftir að tvær bilanir komu upp þegar verið var að dæla eldsneyti á Space Launch System-eldflaugina (SLS).

Vilja herma eftir björnum og leggja geimfara í dvala

Vísindamenn Geimvísindastofnunar Evrópu (ESA) leita nú leiða til að setja geimfara framtíðarinnar í dvala, ekki ósvipað því sem bjarndýr gera á veturna. Þannig væri hægt að spara gífurlega mikið magn matar, vatns og annarra birgða sem eru mönnum nauðsynlegar.

Kínverjar spýta í lófana í geimnum

„Að kanna alheiminn, þróa geimiðnaðinn og gera Kína að geimveldi er eilífur draumur okkar.“ Á þessari tilvitnun í Xi Jinping, forseta Kína, ný hvítbók Geimvísindastofnunar Kína um helstu áætlanir hennar á næstu árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×