Erlent

„Við erum ófær um að vera ábyrg fyrir þeim réttindum sem frelsið færir okkur“

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Uvalde í Texas er heimabær Matthew McConaughey.
Uvalde í Texas er heimabær Matthew McConaughey. Gary Miller/Getty Images

Bandaríski stórleikarinn Matthew McConaughey hefur tjáð sig um skelfilegu skotárásina sem átti sér stað í grunnskóla í bænum Uvalde í Texas í gær en bærinn er heimabær McConaughey.

Skotárásin, sem átti sér stað í Robb grunnskólanum í bænum, er ein sú mannskæðasta á síðari árum í Bandaríkjunum en að minnsta kosti nítján börn á aldrinum sjö til tíu ára og tveir fullorðnir féllu.

Uvalde er smábær í Suður-Texas einungis rúmum 80 kílómetrum frá landamærum Mexíkó en íbuar bæjarins telja um 15 þúsund.

Faraldur sem við getum stjórnað

„Enn og aftur höfum við sannað að við erum ófær um að vera ábyrg fyrir þeim réttindum sem frelsið færir okkur,“ segir McConaughey í færslu á Twitter síðu sinni.

Hann kallar eftir því að Bandaríkjamenn líti í spegil og átti sig á þeim fórnum sem færa megi til að gera morgundaginn að öruggari stað. „Við megum ekki andvarpa enn einu sinni, afsaka og taka þessum skelfilega raunveruleika sem sjálfsögðum hlut.“

„Þetta er faraldur sem við getum stjórnað, sama hvar við stöndum vitum við að við getum gert betur. Við verðum að geta betur. Aðgerða er þörf svo ekkert foreldri muni þurfa að upplifa það sem foreldrar barnanna í Uvalde hafa gengið í gegnum“ segir í yfirlýsingu McConaughey sem lesa má í heild sinni hér að neðan.

Minntist ekki á byssur

Í athugasemdum við færslu sína er McConaughey þó gagnrýndur fyrir að minnast ekki einu orði á hið raunverulega vandamál, nefnilega byssurnar. Ekki sé heldur fyrir að fara neinu ákalli um breytingar á löggjöf í færslunni.

Ekki var sama hlutleysisyfirbragð í ávarpi Steve Kerr, þjálfara NBA-liðsins Golden State Warriors, á blaðamannafundi í gær. Kallaði hann eftir ýmsum umbótum í byssulöggjöf og gagnrýndi þá öldungardeildarþingmenn Bandaríkjaþings sem ekki eru hlynntir breytingunum.


Tengdar fréttir

Nítján börn og tveir fullorðnir létust í árásinni í Texas

Að minnsta kosti nítján börn og tveir fullorðnir eru látnir eftir skotárás 18 ára manns í grunnskóla í Texas. Árásarmaðurinn, Salvador Ramos, hóf fjöldamorðið á því að skjóta ömmu sína sem nú liggur alvarlega særð á spítala.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×