Lífið

Íslendingar yfirtaka Cannes

Elísabet Hanna skrifar
Ída Mekkín Hlynsdóttir, Ingvar Eggert Sigurðsson, Elliott Crosset Hove, Hlynur Pálmason, Victoria Carmen Sonne og Hilmar Guðjónsson
Ída Mekkín Hlynsdóttir, Ingvar Eggert Sigurðsson, Elliott Crosset Hove, Hlynur Pálmason, Victoria Carmen Sonne og Hilmar Guðjónsson Getty/Pascal Le Segretain

Það er margt um Íslendinginn í Cannes þetta árið en Volaða land eftir Hlyn Pálmason er heimsfrumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Cannes í flokknum Un Certain Regard í aðaldagskrá hátíðarinnar.

Hátíðin fer fram dagana sautjánda til tuttugasta og áttunda maí. Heimildamyndin Mannvirki eftir Gústav Geir Bollason, stuttmyndirnar Hex eftir Katrínu Helgu Andrésdóttur og Mitt draumaland eftir Sigga Kjartan verða einnig sýndar í markaðshluta hátíðarinnar.

Mikið líf og fjör er á hátíðinni.Getty/Daniele Venturelli

Volaða land

Myndin Voðlaða land er um ungan danskan prest sem ferðast til Íslands til þess að reisa kirkju og ljósmynda íbúa eyjunnar undir lok 19. aldar. Það er sérvitur leiðsögumaður sem leiðir prestinn í gegnum harðneskjulegt landið á hestbaki í félagsskap heimamanna. Með tímanum fer presturinn að missa tökin á veruleikanum, ætlunarverkinu og siðgæðum sínum.

Klippa: Volaða land - kitla

Elliot Crosset Hove fer með aðalhlutverk en Ingvar E. Sigurðsson, Vic Carmen Sonne, Hilmar Guðjónsson og Ída Mekkín Hlynsdóttir fara meðal annars einnig með hlutverk í myndinni. Ingvar og Ída léku einnig í Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn sem var sýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2019.

Benedikt Erlingsson í dómnefnd

Íslendingar eiga einni fulltrúa í dómnefns eða Semaine de la Critique, þar sem Benedikt Erlingsson, leikari og kvikmyndagerðarmaður er með sess í henni. Myndin hans Kona fer í stríð var sýnd á hátíðinni árið 2018.

Einnig erlendar stjörnur

Stjörnur á borð við Idris Elba, Kristen Stewart, Anne Hathaway, Jeremy Strong, Tildu Swinton, Marion Cotillard og Viggo Mortensen eru einnig á svæðinu.

Jeremy Strong, James Gray og Anne Hathaway.Getty/Stephane Cardinale - Corbis
Patrick Timsit, Marion Cotillard og Melvil Poupaud.Getty/Gareth Cattermole
Scott Speedman, Kristen Stewart, Lea Seydoux og Viggo Mortensen.Getty/Pascal Le Segretain
Léa Seydoux, Kristen Stewart, Nadia Litz, Denise Capezza og Lihi Kornowski.Getty/Stephane Cardinale - Corbis
George Miller, Tilda Swinton og Idris Elba.Getty/Pascal Le Segretain

Tengdar fréttir

Hreiður eftir Hlyn Pálmason valin á Berlinale

Stuttmyndin Hreiður eftir Hlyn Pálmason hefur verið valin í Berlinale Special hluta alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Berlín. Hátíðin fangar 72 ára afmæli sínu nú snemma í febrúar.

Dýrið fer á Cannes

Dýrið eftir Valdimar Jóhannsson hefur verið valin til þátttöku í Un Certain Regard keppni, sem er hluti af aðaldagskrá alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Cannes, sem fer fram dagana 6. - 17. júlí. Frá þessu er greint á vef Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.

Kann betur við Cannes í Co­vid

Leikarinn Björn Hlynur Haraldsson er staddur á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi þessa dagana en kvikmyndin Lamb, eða Dýrið, sem Björn Hlynur fer með hlutverk í var frumsýnd á hátíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.