Lífið

Klippti gat á samfestinginn til þess að stunda kynlíf

Elísabet Hanna skrifar
Parið mátti engan tíma missa.
Parið mátti engan tíma missa. Getty/Steve Granitz

Leikkonan Megan Fox birti skilaboð sem hún sendi á stílistann sinn eftir að bráð nauðsyn bar að garði sem varð til þess að hún þurfti að klippa gat á samfestinginn sinn, nauðsynin var að njóta ásta með unnusta sínum Machine Gun Kelly.

„Var þessi blái samfestingur dýr afþví að við klipptum gat í klofið svo að við gætum stundað kynlíf,“

sendi Megan í skilaboðunum til stílistans síns. Hún klæddist samfestingnum í Las Vegas þar sem þau voru stödd fyrir Billboard Music Awards. Stílistinn svaraði henni með orðunum „Ég hata þig“ sem hlæjandi broskallar fylgdu á eftir. Því næst sagðist hún ætla að laga flíkina. Skilaboðin má sjá á síðustu mynd færslunnar hér að neðan:

Sérstakur flutningur

Á Billboard verðlaununum flutti Machine Gun Kelly lagið Twin Flames sem hann tileinkaði eiginkonu sinni og ófæddu barni sem skyldi áhorfendur og umheiminn eftir með margar spurningar. 

Þá aðallega hvort að þau væru búin að gifta sig og hvort að þau ættu eða hefðu á einhverjum tímapunkti átt von á barni. Í fyrsta sameiginlega viðtalinu sínu sem par sagði Megan að hún hafi fundið það strax að hann væri hennar „twin flame“ þegar þau kynntust við tökur á myndinni Midnight in the Switchgrass og þau hafa talað um hvort annað sem slíka loga síðan.


Tengdar fréttir

Megan Fox senu­þjófur á rauða dreglinum

MTV verðlaunahátíðin var haldin með miklum glæsibrag í Barclays Center í New York í nótt. Allar helstu stjörnur tónlistarheimsins voru þar samankomnar, bæði nýliðar sem og aðrir eldri og reynslumeiri. Það var mikið um glamúr og dressin voru hvert öðru glæsilegra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.