Skoðun

15.000kr á fermetra – Sjálftaka fasteignasala

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar

Fasteignaverð er mikið rætt á Íslandi en lítið er rætt um sjálftöku fasteignasala í formi söluþóknana. Þrátt fyrir að mikill skortur hafi verið á fasteignamarkaði haldast söluþóknanir enn himinháar og hækka bara með hækkandi fasteignaverði. Raunar er meðal söluþóknun fasteignasala um 2,2% í einkasölu en 2,7% í almennri sölu. Við það bætast föst gjöld sem seljendur og kaupendur þurfa að greiða fasteignasalanum, samtals að meðaltali 136.500kr[1][2]. Til að átta okkur á umfangi sjálftökunnar skulum við rýna tölur um markaðinn það sem af er ári:

Hér má sjá að fasteignasalar taka að meðaltali rúmlega eina og hálfa milljón fyrir að selja eign í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu í einkasölu. Fyrstu kaupendur sem leggja út 10% af kaupverði þyrftu að safna sér rúmlega sex milljónum til að kaupa meðal fjölbýlis íbúð í höfuðborginni, en fasteignasalinn hirðir í raun strax einn fjórða af því í eigin vasa! Mánaða eða ára sparnaður fyrir nokkra klukkustunda vinnu fasteignasala. Á landinu í heild er ástandið litlu skárra, það kostar einfaldlega það sama að fá fasteignasala til að selja eina fasteign og það kostar að ráða tvo til fjóra meðallaunamenn í vinnu í heilan mánuð. Hvernig má það vera? Annar mælikvarði er að horfa á hvað fasteignasalar taka á hvern seldan fermetra. Ódýrast er það 10.000kr og upp í vel rúmlega 15.000kr. Því mættu kaupendur hugsa að þeir gætu fengið fasteignina með glænýju gólfefni, mögulega innréttingum, en áfram á sama verði ef þeir þyrftu ekki að greiða fasteignasalanum. Allar þessar upphæðir væru svo umtalsvert hærri ef um almenna sölu en ekki einkasölu væri að ræða.

Á Íslandi eru margar fasteignasölur og að sama skapi hefur verið skortur á eignum til sölu. Þessi skilyrði ættu að ýta undir ríka samkeppni en hún virðist skila sér seint og illa. Sömuleiðis er það undarlegt að söluþóknanir fari nær eingöngu eftir verði fasteignar án tillits til vinnuframlags fasteignasalans. Þannig kostar skyndilega mun meira að selja sama húsnæði árið 2022 heldur en það gerði 2019, hækkun sem er langt umfram verðbólgu og almenna launaþróun. Margt fleira má segja um þessi mál, en ég læt nægja í bili að segja að mér þykir þessi sjálftaka óhófleg.

Höfundur er doktorsnemi í hagfræði


[1] Almennt eru söluþóknanir gefnar upp án VSK og þá eru meðaltölin um 1,75%, 2,2% og 110.000kr. Fyrir almenna umræðu liggur þó beinna við að nota upphæðir með VSK þar sem almenningur greiðir það verð.

[2] Heimild: Allt fasteignasala, Ás fasteignasala, Borg, Consensa, Eignamiðlun, Eignaver fasteignasala, Fasteignasala Sævars Þórs, Gimli, Heimili, Landmark, Lind fasteignasala, Miklaborg fasteignasala, Nýtt heimili og RE/MAX.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×