Lífið

Kom á óvart hvað Eurovision var fjölskylduvænt og þægilegt

Dóra Júlía Agnarsdóttir og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa
Ragnar, María og börn skelltu sér á Eurovision í Tórínó.
Ragnar, María og börn skelltu sér á Eurovision í Tórínó. Júrógarðurinn

Hjónin Ragnar Jónasson og María Margrét Jóhannsdóttir skelltu sér til Tórínó ásamt dætrum sínum til að sjá Ísland á sviði. Þau segja Eurovision hina bestu fjölskylduskemmtun og stefna sannarlega á að fara aftur. Júrógarðurinn tók púlsinn á þeim og fékk að heyra meira um þessa fjölskylduferð.

„Ítalía er eitt okkar uppáhalds land og þetta var bara ákveðið tækifæri fyrir fjölskylduna að fara heimsækja uppáhalds landið okkar og fagna með Íslendingum góðu gengi“, segir María aðspurð um af hverju þau ákváðu að skella sér.

„Það er gaman að sjá Eurovision“, segir Ragnar og bætir við: „Mér hefur aldrei áður dottið í hug að fara og sjá það, en hef að sjálfsögðu horft á Eurovision eins og allir Íslendingar á hverju ári. Svo reyndist það vera ótrúlega skemmtilegt og mikil stemning í kringum það. Það er frábært að vera á Ítalíu, frábært að vera í Tórínó, Juventus völlurinn er rétt hjá, góður matur og gott veður, það er ekki hægt að kvarta yfir þessu.“

En hvað fannst fjölskyldunni skemmtilegast við Eurovision upplifunina?

„Stemningin meðal gesta“, segir María og Ragnar bætir við: „Svo kom á óvart hvað þetta var auðvelt, þægilegt og fjölskylduvænt.“ Þau segja upplifunina í alla staði hafa verið virkilega góða og skemmtilega og gaman að fá að sjá þetta með eigin augum.

Dætur Ragnars og Maríu skemmtu sér vel á Eurovision síðastliðið þriðjudagskvöld.Aðsend

Og haldið þið að þið farið aftur?

„Já við erum nú þegar farin að ræða það. Það kemur í ljós hvert við förum um helgina, eftir að tilkynnt hefur verið um hvaða land vinnur,“ segir María og hlær.

Að lokum spurði blaðamaður hvaða land þau telji að muni bera sigur úr býtum í kvöld og þurftu þau ekki að hugsa sig tvisvar um þegar þau svöruðu brosandi: „Ísland!“


Tengdar fréttir

Þetta eru lögin sem keppa á lokakvöldi Eurovision

Eurovision keppnin nær hámarki í kvöld þegar 25 lönd keppast um að fá glerstyttuna eftirsóttu. Úkraínu er spáð öruggum sigri en sagan hefur kennt okkur að allt getur gerst í þessari keppni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.