Skoðun

Hús­næðis­vandi ungs fólks

Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Flest okkar hafa löngun til að yfirgefa hreiður foreldrahúsanna og koma okkur upp eigin heimili þegar við fullorðnumst. Að eiga þak yfir höfuðið og griðarstað eru mikilvæg mannréttindi fólks.

Ungt fólk stendur frammi fyrir því að taka ákvarðanir um íbúðarkaup, stærstu fjárhagslegu ákvarðanir sem flest munu taka á lífsleiðinni. Ákvörðunin nú er ekki bara stór, heldur risastór jafnvel ómöguleg, því fasteignaverð hefur farið upp úr öllu valdi meðal annars vegna þess að borgarstjórn hefur ekki tryggt nægt framboð lóða til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis. Ungt fólk sem kemst inn á húsnæðismarkaðinn á oftar en ekki foreldra eða ömmur og afa sem aðstoða þau við að koma sér upp heimili, hvort sem það er með því að búa lengur í foreldrahúsum eða leggja út fé í útborgun. Ekki eru þó allir í þeirri stöðu að eiga fjársterka foreldra eða aðstandendur.

Í janúar 2022 bjuggu einungis um 46% launafólks 35 ára og yngra í eigin húsnæði. Staðan á leigumarkaði er heldur ekki björt fyrir ungt fólk. Leiguverð hefur hækkað um 100% á síðasta áratug. Ungt námsfólk greiðir hæsta hlutfall af ráðstöfunartekjum sínum í leigu, en 35% námsfólks greiða 70% eða meira af ráðstöfunartekjum sínum í leigu og 22% greiða á bilinu 50 - 69%. Um 45% launafólks undir 35 ára aldri er á almennum leigumarkaði. Samkvæmt upplýsingum frá Samtökum leigjenda eru 0.5-1.4% líkur á því að leigjendur eldri en 35 ára komist út af leigumarkaðnum og eignist húsnæði. Þetta er staðreynd þrátt fyrir að 9 af hverjum 10 leigjendum vilja ekki vera á leigumarkaði samkvæmt rannsókn Húsnæðis og mannvirkjastofnunar.

Breytinga er þörf

Framsókn hefur beitt sér fyrir því að koma á fót hlutdeildarlánum til þess að aðstoða ungt fólk við að eignast eigið húsnæði en þau eru háð því að sveitarfélög eins og borgin tryggji lóðaframboð á viðráðanlegu verði til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis. Stórsókn er þörf í uppbyggingu íbúða. Þétting byggðar, þar sem það er mögulegt, er skynsamleg enda nýtast þá innviðir sem eru til staðar. Þétting byggðar ein og sér mun þó sennilega ekki ná að tryggja nægjanlegan fjölda íbúða miðað mannfjöldaspá og eftirspurn eftir húsnæði. Víkka þarf því byggðina út á vel ígrunduðum stöðum, þar sem innviðir ráða við, til þess mæta eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði. Liggur þar beinast við að flýta uppbyggingu byggðar í Keldnalandi, landi sem ríkið lét Reykjavíkurborg í té vegna samgöngusáttmála á milli ríkis og sveitarfélaganna á Höfuðborgarsvæðinu. Framsókn vill húsnæðissáttmála til að ná jafnvægi í húsnæðismálum. Mæta verður mikilli eftirspurn með því að byggja meira, hraðar og fjölbreyttara húsnæði og er markmiðið að tryggja lóðaframboð svo unnt verði að byggja 3000 íbúðir á ári. Setjum húsnæðismálin í forgang og tryggjum öllum möguleika á að eignast heimili.

Er ekki kominn tími á breytingar í borginni?

Höfundur er 25 ára háskólanemi og skipar 3. sæti á lista Framsóknar í borgarstjórnarkosningunum sem fara fram 14. maí n.k.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×