Tónlist

Dönsuðu fyrir blaðamenn á túrkís dreglinum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifa
Brooke syngur framlag Írlands í Eurovision í ár.
Brooke syngur framlag Írlands í Eurovision í ár. Júrógarðurinn

Brooke keppir fyrir Írland í Eurovision í ár með lagið That's Rich. Brooke keppir á seinna undankvöldinu sem fram fer í kvöld.

Atriðið hefst á því að Brooke og dansararnir hennar liggja á stóra sviðinu. Brooke er ekki spáð góðu gengi í Eurovision.  Tíu lönd komast áfram í kvöld og Brooke er spáð í 15. sæti af 18 lögum en eins og við Íslendingar vitum vel þá getur allt gerst.

Brooke ræddi við Júrógarðinn á opnunarhátíð Eurovision og tók einnig nokkur spor á túrkís dreglinum ásamt dönsurunum sínum. Viðtalið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. 

Klippa: Írsku keppendurnir dönsuðu á túrkís dreglinum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir eru fulltrúar fréttastofunnar á Eurovision í Tórínó á Ítalíu. Munu þær birta fréttir, viðtöl, hlaðvörp og auðvitað líka reglulega þætti af Júrógarðinum

Alla umfjöllun okkar um Eurovision keppnina má finna HÉR á Lífinu á Vísi. 


Tengdar fréttir

Fjölskyldurnar mættar út til Tórínó

Íslenski keppnishópurinn fór út að borða í gærkvöldi í Tórínó. Hópurinn í kringum Systur hérna úti hefur stækkað töluvert frá því að þau mættu til Ítalíu. 

Systurnar sleppa við Covid-prófin

Keppendur í Eurovision þurfa ekki lengur að sýna fram á neikvætt Covid-próf til að mega stíga á svið í keppninni. Það er því engin hætta á að Systur fái ekki að koma fram líkt og Daði og Gagnamagnið í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.