Sköpuðu rými sérstaklega fyrir börn í Hörpu Elísabet Hanna skrifar 13. maí 2022 11:31 Sigríður Sunna Reynisdóttir er listrænn stjórnandi hönnunarteymisins Þykjó. Sigga Ella Hönnunarteymið Þykjó fékk það verkefni að hanna Hljóðhimna sem er nýtt upplifunarrými fyrir fjölskyldur og börn í Hörpu. Þær hafa upplifað góð viðbrögð við hönnuninni og eru spenntar fyrir komandi verkefnum.
Í teyminu eru þær Sigríður Sunna Reynisdóttir leikmynda- og búningahönnuð, Ninna Þórarinsdóttir barnamenningarhönnuður, Erla Ólafsdóttir arkitekt og Sigurbjörg Stefánsdóttir klæðskeri og fatahönnuður. Á HönnunarMars var hönnunarteymið Þykjó var með sýningu og viðburð fyrir börn og fjölskyldur í tenglsum við Hljóðhimna í Hörpu. Á sýningunni ,,Undir Hljóðhimnum" veittu þær innsýn í hönnunarferlið á bak við Hljóðhimna, allt frá fyrstu hugmynd, til skissu til smíðateikninga og svo var hægt að upplifa lokaútkomuna sjálfa sem er aðgengileg öllum í Hörpu um ókomna tíð. View this post on Instagram A post shared by Þykjo (@thykj_o) Blaðamaður hafði samband við Sigríði Sunnu Reynisdóttur sem er listrænn stjórnandi ÞYKJÓ. Hvernig kviknaði hugmyndin að Hljóðhimnum?Melkorka Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá Hörpu, hafði samband við okkur og bauð okkur þann heiður að leiða hönnunarferlið fyrir verkefnið. Þetta var búinn að vera langþráður draumur margra allt frá því að Hallfríður Ólafsdóttir heitin plantaði þessu fræi: Að skapa rými sérstaklega fyrir börn í Hörpu. Við unnum verkefnið í samvinnu við Hörpu og íbúa hússins: Sinfóníuhljómsveit Íslands, Stórsveit Reykjavíkur, Íslensku óperuna, Reykjavík Audio og auðvitað sjálfan Maxímús Músíkús. Auk þeirra voru Gagarín, Irma, Vísindasmiðjan og Krakkaráð ÞYKJÓ frábærir samstarfsaðilar. View this post on Instagram A post shared by Þykjo (@thykj_o) Hver voru fyrstu skrefin í að framkvæma hana?Við hönnuðir ÞYKJÓ lögðum mikla áherslu á að fyrstu skrefin yrðu samtal og samstarf við börn. Við fengum hópa barna á aldrinum fimm til átta ára, alls hundrað börn, sem komu í Hörpu síðasta sumar og tóku þátt í vinnustofum með okkur og hljóðtilraunum með vísindamönnum Vísindasmiðjunnar. Við skoðuðum rýmið með þeim þegar það stóð tómt og fullt af möguleikum og fengum þeirra álit á hvernig það gæti orðið. „Öll okkar hönnunarvinna í kjölfarið byggði á þessu samtali og samstarfi við börnin.“ View this post on Instagram A post shared by Þykjo (@thykj_o) Hvernig viðbrögð hefur hönnunin verið að fá?Við höfum fengið mikið af afskaplega fallegum viðbrögðum frá bæði fullorðnum og börnum. Einn lítill snáði sagði okkur að hann vildi eiga heima í Hljóðhimnum - það er mikið hrós. Svo tala margir foreldrar um að það sé lúxusvandamál hvað sé erfitt að ná börnunum aftur út því þeim finnist svo gaman og vilji dvelja lengur. Það er líka gaman að heyra frá tónmennta- og tónlistarkennurum hvernig þetta getur stutt við kennslu og fræðslu í skólum. „Almennt höfum við fundið fyrir þakklæti yfir því að vandað sé til verka fyrir börn og fjölskyldur.“ View this post on Instagram A post shared by Þykjo (@thykj_o) Hvað hefur verið skemmtilegasta verkefnið hjá ykkur til þessa?Við erum svo lánsamar að hvert skemmtilega verkefnið tekur við af öðru. Við áttum mjög gjöfulan tíma sem staðarlistamenn í Menningarhúsum Kópavogs á síðasta ári þar sem við unnum Kyrrðarrýmin okkar í Gerðarsafni, tónlistarverkefnið Fuglasöngva í Salnum og búningalínuna Ofurhetjur jarðar í Bókasafni Kópavogs. Næst munum við gera innsetninguna Sjónarspil hjá vinum okkar í Náttúrufræðistofu Kópavogs sem við hlökkum mikið til. View this post on Instagram A post shared by Þykjo (@thykj_o) Finnst ykkur Harpa orðin fjölskylduvænni?Já, okkur finnst til fyrirmyndar hvað stjórn hússins var með skýra stefnu um að gera Hörpu fjölskylduvænni og tilbúin að fylgja því eftir af krafti. Við upplifðum sterkt á HönnunarMars hvernig húsið iðaði af lífi og barnamenningu, foreldrar gátu komið og átt fjölbreyttar gæðastundir með börnunum sínum. Eru fleiri svona verkefni væntanleg í Hörpu?Hljóðhimnar er varanleg innsetning og mun þróast áfram með fjölbreytt framhaldslíf, sem er einstaklega ánægjulegt. Þetta er hjarta barnamenningar Hörpu sem púlsar út í önnur rými hússins, eins og til dæmis Norðurbryggju. Við hönnuðum margt með það í huga að hægt væri að færa það til um húsið og bæta við. Hljóðhimnar eru með sína eigin viðburðadagskrá en nú eftir HönnunarMars verður til dæmis Sveifluball fyrir börn og fjölskyldur með Stórsveit Reykjavíkur þann 21. maí. View this post on Instagram A post shared by Þykjo (@thykj_o) En á öðrum stöðum?Okkur finnst mikil gróska í barnamenningu á Íslandi og vonum að við færumst nær því sem tíðkast í mörgum öðrum Norðurlöndum, þar sem flestar opinberar menningarstofnanir hafa vönduð barnarými og jafnvel heilu barnamenningarhúsin. Hvað er framundan?Auk áðurnefndrar innsetningar í Náttúrufræðistofu Kópavogs erum við með spennandi verkefni sem við megum ekki tala um strax, en hvetjum alla áhugasama að fylgjast með okkur á samfélagsmiðlum. View this post on Instagram A post shared by Þykjo (@thykj_o)
HönnunarMars Tíska og hönnun Harpa Tengdar fréttir Ný hljóð við Hörpu með komu nýs útilistaverks Útilistaverkið Himinglæva var afhjúpað fyrir framan Hörpu í dag. Listaverkið er eftir Elínu Hansdóttur myndlistarkonu og er fagurlega formað hljóðfæri. Tónar heyrast frá listaverkinu þegar vindurinn blæs. 7. maí 2022 16:54 Allt í blóma hjá Hildi Yeoman Hildur Yeoman stóð fyrir sýningunni In Bloom sem var partur af HönnunarMars og fór fram í Höfuðstöðinni. Merkið hefur verið áberandi bæði innan og utan landsteinanna og er þekkt fyrir draumkennd prent, falleg snið og litadýrð. 9. maí 2022 15:30 #íslenskflík: „Undir sterkum áhrifum frá fortíðinni og jafnvel fremur rómantískur“ Sævar Markús Óskarsson er fimmti viðmælandinn í #íslenskflík sem er verkefni Fatahönnunarfélags Íslands sem miðar að því að kynna íslenska fatahönnun og vekja athygli á því framúrskarandi hugviti og þeim fjölbreyttu vörum sem hér er að finna. 8. maí 2022 13:00 Mest lesið Myndaveisla: Rífandi stemning og hópsöngur í Breiðholti Lífið Meintur stuldur á borð RÚV Lífið Myndaveisla: Dansað fram á nótt á þorrablóti Keflavíkur Lífið Deila um gervigreind skekur Hollywood í aðdraganda Óskarsins Bíó og sjónvarp „Að maður geti gert allt sjálfur hefur kennt mér margt“ Lífið Kennir óprúttnum aðila um Instagram aðförina að eiginkonunni Lífið Ofsafengin sjálfsrækt getur reynst stórskaðleg Lífið Guðni og Margrét selja svansvottaða eign á Selfossi Lífið Fyrsta samfélagsmiðlastjarna Íslands: „Ert þú að segja að ég sé feitur?“ Lífið Litríkar umbúðir en lítið innihald Gagnrýni Fleiri fréttir Myndaveisla: Rífandi stemning og hópsöngur í Breiðholti Kennir óprúttnum aðila um Instagram aðförina að eiginkonunni Meintur stuldur á borð RÚV Myndaveisla: Dansað fram á nótt á þorrablóti Keflavíkur Fyrsta samfélagsmiðlastjarna Íslands: „Ert þú að segja að ég sé feitur?“ Heiðar Logi og Anný orðin foreldrar Guðni og Margrét selja svansvottaða eign á Selfossi „Að maður geti gert allt sjálfur hefur kennt mér margt“ Brunabjallan fór í gang í miðjum fréttatíma Risa endurkoma eftir áratug í dvala Kúrekarnir tóku völdin í Grafarvogi Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú svarar Frúnni í Hamborg Fimmtán árum fagnað í sólinni Þetta hafði fólk að segja eftir lokaþáttinn af Vigdísi Ofsafengin sjálfsrækt getur reynst stórskaðleg Kjartan og Tekla tækla yfirþyngd og orkuleysi Hommalegasta blómabúðin opnuð með stæl Stjörnulífið: Menningarsjokk í Vesturbænum og öskrandi á Tene Einföld atriði fyrir aukna vellíðan í skammdeginu Hera gerir upp skítkastið: Lágværi meirihlutinn jafn sekur og háværi minnihlutinn Þéna töluvert þrátt fyrir að vera ekki til Krakkatían: Grænland, galdrakarl og Greppikló Grundvallarmisskilnings gæti um þaksvalir á Íslandi „Lífið væri svo miklu leiðinlegra ef ég ætti ekki bróður með Downs“ Kenndi sjálfum sér um í tuttugu ár Fréttatía vikunnar: Bólfélagar, fjársvik og flóð Fötlunin ekki stærsta áfallið heldur veikindin sem fylgdu Mótmæltu keppninni í fyrra en ætla sér alla leið í ár Ragna Sigurðardóttir á von á barni Þetta eru keppendur Söngvakeppninnar 2025 Sjá meira
Ný hljóð við Hörpu með komu nýs útilistaverks Útilistaverkið Himinglæva var afhjúpað fyrir framan Hörpu í dag. Listaverkið er eftir Elínu Hansdóttur myndlistarkonu og er fagurlega formað hljóðfæri. Tónar heyrast frá listaverkinu þegar vindurinn blæs. 7. maí 2022 16:54
Allt í blóma hjá Hildi Yeoman Hildur Yeoman stóð fyrir sýningunni In Bloom sem var partur af HönnunarMars og fór fram í Höfuðstöðinni. Merkið hefur verið áberandi bæði innan og utan landsteinanna og er þekkt fyrir draumkennd prent, falleg snið og litadýrð. 9. maí 2022 15:30
#íslenskflík: „Undir sterkum áhrifum frá fortíðinni og jafnvel fremur rómantískur“ Sævar Markús Óskarsson er fimmti viðmælandinn í #íslenskflík sem er verkefni Fatahönnunarfélags Íslands sem miðar að því að kynna íslenska fatahönnun og vekja athygli á því framúrskarandi hugviti og þeim fjölbreyttu vörum sem hér er að finna. 8. maí 2022 13:00