Skoðun

Á­fram far­sæld með for­ystu Sjálf­stæðis­flokksins í Hafnar­firði

Kristinn Andersen skrifar

Á næstu vikum kjósa íbúar Hafnarfjarðar hverjum verði treyst til að stjórna bænum til næstu fjögurra ára. Undanfarin ár hafa fleiri Hafnfirðingar valið fulltrúa sína úr hópi sjálfstæðismanna en nokkurs annars framboðs í bænum. Undir meirihlutastjórn sjálfstæðismanna hefur bærinn tekið stakkaskiptum svo um munar. Mikilvægt skref undir forystu okkar var að taka á fjármálum bæjarins, sem áður hafði misst fjárhagslegt forræði sitt til eftirlitsnefndar ríkisins eftir áralanga skuldasöfnun. Þeir tímar eru að baki og til þeirra viljum við ekki hverfa aftur.

Árangur okkar

Þau undanfarin ár sem við sjálfstæðismenn höfum farið fyrir meirihluta í bæjarstjórn höfum við staðið að umbótum og uppbyggingu á fjölmörgum sviðum svo eftir hefur verið tekið.

Við höfum lagt grunninn að nýju vaxtarskeiði Hafnarfjarðar og skipulagt land undir ný hverfi bæjarins ásamt vexti í eldri hverfum, en um þessar mundir eru yfir 1000 íbúðir í byggingu í bænum. Með skynsamlegri ráðstöfun fjármuna kemur Hafnarfjörður undan heimsfaraldri með því að halda uppi framkvæmdum af fullum krafti, uppbyggingu í öldrunarmálum og íþróttamannvirkjum og viðhaldi á eignum og umhverfi bæjarins.

Jafnframt höfum við sjálfstæðismenn í Hafnarfirði ötullega stutt og unnið að verkefnum til mannræktar og menningar. Nefna má stuðning við fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi, ekki aðeins ungmenna heldur einnig fyrir aðra aldurshópa og eldri borgara, þar sem Hafnarfjörður er í fararbroddi sveitarfélaga á landinu. Endurgerður St. Jósefsspítali hefur fengið nýtt hlutverk með fjölda einkaaðila og samtaka sem vinna að lífsgæðum fólks og Bæjarbíó hefur öðlast nýtt líf sem vinsælt menningarhús í hjarta bæjarins.

Atkvæði greidd öðrum gagnast ekki

Á sama tíma og Hafnarfjörður vex og dafnar hefur tekist að lækka hlutfall skulda af tekjum bæjarins, álagningarprósenta fasteignaskatta hefur verið lækkuð og álagning útsvars er ekki lengur í hámarki eins og þekkist annars staðar. Grunnstefna okkar um lægri álögur og árangur Sjálfstæðisflokksins í þeim efnum skilur okkur frá öðrum framboðum í bænum og gefur okkur skýra sérstöðu.

Í komandi bæjarstjórnarkosningum verður valið milli þess að halda áfram þeim vexti og velsæld sem við sjálfstæðismenn höfum skilað í verkum okkar, eða að velja áherslur annarra. Eingöngu atkvæði greidd Sjálfstæðisflokknum í Hafnarfirði tryggja áframhaldandi vinnu okkar að farsæld fyrir Hafnarfjörð, atkvæði greidd öðrum gagnast þar ekki.

Höfundur er forseti bæjarstjórnar og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×