Innlent

Selenskí ávarpar íslensku þjóðina á morgun

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Volódímír Selenskí, forseti Úkraínu.
Volódímír Selenskí, forseti Úkraínu. AP/Embætti forseta Úkraínu

Volódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpar alþingismenn og íslensku þjóðina á morgun klukkan 14 í gegnum fjarfundabúnað við sérstaka athöfn í þingsal Alþingis. Hægt verður að fylgjast með ávarpinu í streymi á Vísi og sömuleiðis á sjónvarpsrás og vef Alþingis. 

Í fréttatilkynningu frá Alþingi segir að ávarp Selenskís sé einstakur viðburður því þetta verði í fyrsta skipti sem erlendur þjóðhöfðingi flytur ávarp í þingsal Alþingis.

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, mun stýra þessari sérstöku athöfn í sal Alþingis og talar í upphafi athafnarinnar. Þá mælir forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, nokkur orð fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Síðan tekur Selenskí til máls. Að loknu ávarpi Selenskís ávarpar forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, forseta Úkraínu.

„Ísland hefur frá upphafi fordæmt tilefnislausa innrás Rússlands í Úkraínu og lýst yfir eindregnum stuðningi við úkraínsku þjóðina og þarlend stjórnvöld. Ísland tekur fullan þátt í alþjóðlegum þvingunaraðgerðum gegn Rússlandi, styður við mannúðaraðgerðir Sameinuðu þjóðanna og annarra stofnana og tekur á móti fólki á flótta frá Úkraínu. Þá hefur Ísland haft milligöngu um loftflutninga búnaðar, þar á meðal hergagna, í tengslum við varnir Úkraínu. Ísland mun áfram leita leiða til þess að styðja við Úkraínu með öllum þeim ráðum sem stjórnvöldum eru tiltæk og í samræmi við þær þarfir sem uppi eru í Úkraínu,“ segir í tilkynningu frá Alþingi.

Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar hefur fylgst með gangi mála í Úkraínu í vaktinni á Vísi frá því að innrásin hófst 24. febrúar. Lesa má nýjustu tíðindi í vakt dagsins, hér að neðan.


Tengdar fréttir

Stríðið í Úkraínu kyndir undir verðbólgu

Verðbólga á Íslandi hefur ekki verið meiri í tólf ár sem ásamt verðbólgu í helstu viðskiptalöndum knúði Seðlabankann til að hækka meginvexti sína um eitt prósentustig í morgun. Efnahagshorfur fara versnandi þrátt fyrir góða hagvöxt og lítið atvinnuleysi.

Sendifulltrúi Rauða krossins kominn til Lviv í Úkraínu

Orri Gunnarsson sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi og verkfræðingur verður að störfum í Lviv í Úkraínu næstu tvo mánuði sem samræmingaraðili við gerð skýla fyrir fólk á vergangi innan Úkraínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×