„Þetta samkomulag markar þáttaskil þar sem Arion banki og Mosfellsbær leggja verulega af mörkum til uppbyggingar á nýju húsnæði á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í kynningunni.
Samkomulagið gerir ráð fyrir 3.500 til 3.700 íbúðum og stóru svæði fyrir atvinnuhúsnæði, ásamt skólum leikskólum og íþróttamiðstöð.
„Arion banki hefur skuldbundið sig til að taka þátt í kostnaði við innviði,“ sagði Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka á fundinum, en bankinn mun gera frekari grein fyrir áformunum í náinni framtíð.
Blikastaðaland, sem er um 900 þúsund fermetrar að stærð og er eitt stærsta óþróaða landið á höfuðborgarsvæðinu, er í eigu Blikastaðalands ehf., dótturfélags Arion banka.
Bankinn eignaðist landið árið 2009 þegar félag, sem hafði keypt það á 11,8 milljarða króna árið 2008, varð gjaldþrota. Í ársreikningi Blikastaðalands ehf. fyrir árið 2020 er eignin bókfærð á 5 milljarða króna.
Uppbygging Blikastaðalands hefur lengi verið á teikniborðinu en hún hangir saman við uppbyggingu Borgarlínunnar sem mun fara gegnum svæðið.