Skoðun

Fjár­festum í fram­tíðinni

Íris Andrésdóttir skrifar

Þegar áhrif Covid-19 voru sem mest kom berlega í ljós hvaða stofnanir gegndu lykilhlutverki í samfélaginu okkar; heilbrigðis- og menntastofnanir. Framhaldsskólar lokuðu en hægt var að halda úti fjarkennslu. Grunn- og leikskólar héldust hins vegar opnir og reynt var eftir fremsta megni, að skerða sem minnst þjónustu við börn og barnafjölskyldur. Stjórnendur og starfsfólk í grunn- og leikskólum lögðust í miklar endurskipulagningar á óvissutímum og sífellt þurfti að bregðast við hinum ýmsum takmörkunum sem í gildi voru hverju sinni. Stjórnendum og starfsfólki grunn- og leikskóla var raðað í forystusveit og unnu þrekvirki í að halda uppi faglegu starfi.

Skólasamfélagið er einn stærsti einstaki málaflokkur borgarinnar og það kostar vissulega sitt að reka skóla. En á sama tíma má spyrja sig: Setjum við verðmiða á velferð, menntun og framtíð barnanna okkar? Eiga ekki öll börn, óháð uppruna, efnahagslegri stöðu og líkamlegu- og andlegu atgervi, rétt á að sækja skóla og njóta til þess stuðnings sem styrkir þau í námi og leik?

Fjölgum sérfræðimenntuðu fagfólki

Á yfirstandandi skólaári eru rúmlega 15000 nemendur í grunnskólum í Reykjavík og leikskóla í Reykjavík sækja rúmlega 6000 börn. Börn eru ólík eins og þau eru mörg og þarfir þeirra jafn ólíkar. Krafan um aukinn stuðning við börn og kennara fer vaxandi frá ári til árs í skólum borgarinnar. Bið eftir sálfræðiþjónustu lengist sífellt og dæmi eru um að börn og fjölskyldur þeirra þurfi að bíða allt upp í 18 mánuði og jafnvel lengur eftir þjónustu talmeinafræðings. Þá er ótalin þörfin fyrir aukna aðkomu þroskaþjálfa, iðjuþjálfa, sálfræðinga, talmeinafræðinga og hjúkrunarfræðinga að daglegu starfi í skólum í formi ráðgjafar og stuðnings við börn og starfsfólk. Það er skýr stefna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs að fjölga sérfræðimenntuðu fagfólki í grunn- og leikskólum og styrkja þannig gott gangverk skólasamfélagsins svo öll börn fái notið sín í leik og starfi.

Afnám gjaldtöku

Árið 2018 var stigið stórt skref í Reykjavík í áttina að minnka kostnaðarþátttöku foreldra/forráðamanna í grunnskólum þegar ritfangakostnaður var aflagður. Með þátttöku í meirihlutasamstarfi hafa Vinstri græn einnig barist fyrir lægri leikskólagjöldum í Reykjavík og lægri greiðsluþátttöku foreldra/forráðamanna í skólamáltíðum.

Lykilþáttur í heilbrigði barna er góð næring. Vinstri græn vilja stíga næstu skref og tryggja öllum börnum í grunnskólum Reykjavíkur heilnæman og vistvænan hádegismat með endurgjaldslausum skólamáltíðum. Einnig viljum við afnema leikskólagjöld í leikskólum borgarinnar og tryggja þannig öllum börnum á leikskólaaldri sömu tækifæri til náms og leiks, óháð efnahag og félagslegum aðstæðum.

Þegar kemur að málefnum barna og skólasamfélagsins eru áherslur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fyrir komandi sveitastjórnarkosningar skýrar. Setjum ekki verðmiða á menntun og velferð barnanna okkar, fjárfestum í framtíðinni.

Höfundur er grunnskólakennari og skipar 4.sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík.




Skoðun

Sjá meira


×