Innlent

Fylgisaukning Pírata heldur meirihlutanum í Reykjavík á lífi

Heimir Már Pétursson skrifar
Sjálfstæðisflokkurinn hefur tapað miklu fylgi í Reykjavík samkvæmt könnun Maskínu. Framsókn og Píratar eru í sókn.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur tapað miklu fylgi í Reykjavík samkvæmt könnun Maskínu. Framsókn og Píratar eru í sókn. Vísir/Vilhelm

Sérfræðingur í sveitarstjórnarmálum segir spennandi kosningar framundan í Reykjavík. Sameiginlegt fylgi meirihlutaflokkanna geti ráðist af kjörsókn kjósenda Pírata sem eru í sókn í borginni.

Samkvæmt nýjust könnun Maskínu fyrir fréttastofuna sem við greindum frá í kvöldfréttum í gær halda flokkarnir fjórir í núverandi meirihluta í borgarstjórn meirihluta sínum og bæta reyndar við sig einum fulltrúa, færu úr tólf í þrettán. Það skýrist af því að Píratar myndu bæta við sig tveimur borgarfulltrúum sem rúmlega vegur upp tap Samfylkingarinnar á einum fulltrúa en Viðreisn og Vinstri græn héldu sama fjölda og í kosningunum 2018.

Grétar Þór Eyþórsson stjórnsýslufræðingur segir spennandi kosningar framundan í Reykjavík.Stöð 2

Grétar Þór Eyþórsson prófessor við Háskólann á Akureyri er sérfræðingur í sveitarstjórnarmálum. Hann segir þróunina í könnunum vera meirihlutaflokkunum í hag. Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið byrjaður að tapa fylgi í könnunum í Reykjavík áður en íslandsbankamálið kom upp.

„Eftir að það kom til hefur reist enn þá meira af fylginu. Þannig að það eru greinilega einhver áhrif af þessu máli. Maður getur eiginlega ekki ályktað öðruvísi. En það var eitthvað tap í uppsiglingu engu að síður,“ segir Grétar Þór.

Í kosningunum 2018 fékk Sjálfstæðisflokkurinn 30,8 prósent atkvæða en í könnun Maskínu frá í gær mælist flokkurinn með 20,7 prósent atkvæða og fengi fimm borgarfulltrúa í stað átta áður. Samfylkingin fengi sex fulltrúa en var með sjö í síðustu kosningum, Viðreisn héldi sínum tveimur og Vinstri græn sínum eina. Það eru hins vegar Píratar sem eru að sækja í sig veðrið og færu í tveimur fulltrúum í fjóra samkvæmt könnun Maskínu.

„Það sem heldur meirihlutanum fyrst og fremst á lífi er hvað Píratar standa sig vel. Eða koma vel út úr þessum könnunum,“ segir Grétar Þór.

Stór hluti kjósenda þeirra sé ungt fólk og reynslan sýni að yngri kjósendur skili sér ver á kjörstað en þeir eldri. Það sé þó ekki hægt að fullyrða að svo verði í komandi kosningum. Framsóknarflokkurinn hafi verið í mikilli sókn og mælist ítrekað með þrjá borgarfulltrúa en fékk engan mann kjörinn árið 2018. Hann gæti því komist í odda aðstöðu ef fylgi annarra flokka færist til.

„Það er alveg hugsanlegt ef Framsóknarflokkurinn heldur þessum þremur mönnum. En á meðan Sjálfstæðismenn eru að mælast aftur og aftur með bara fimm menn þarf dálítið mikið til.“ Nú rétt fyrir kosningar sé staðan í Reykjavík mjög spennandi, segir Grétar Þór Eyþórsson.


Tengdar fréttir

Meirihlutinn í Reykjavík fallinn og Framsókn í stórsókn

Meirihlutinn í Reykjavík er fallinn samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna, jafnvel þótt Sjálfstæðisflokkurinn tapi tveimur borgarfulltrúum frá síðustu kosningum. Framsóknarflokkurinn er í stórsókn og fengi þrjá borgarfulltrúa.

Sjálfstæðisflokkur og Samfylking tapa miklu fylgi í Reykjavík

Töluverðar breytingar eru á fylgi flokka fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík. Samfylkingin tapar töluverðu fylgi en Framsóknarflokkurinn er í mikilli sókn ásamt Pírötum. Meirihlutaflokkarnir gætu endurnýjað samstarf sitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×