Innlent

Bein út­sending: Við erum öll al­manna­varnir

Eiður Þór Árnason skrifar
Víðir Reynisson mun meðal annars flytja erindi á ráðstefnunni.
Víðir Reynisson mun meðal annars flytja erindi á ráðstefnunni. Vísir/Vilhelm

Ráðstefnan Við erum öll almannavarnir verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica klukkan 13 í dag en þar verður fjallað um almannavarnamál á Íslandi frá ýmsum hliðum.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra opnar ráðstefnuna en á eftir honum kemur Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, og segir frá áherslunum á næstu árum. Næst verður flutt kynning á verkefni Rauða krossins sem ber heitið 3 dagar, sem gengur út á að hvert og eitt heimili þurfi að geta verið sjálfu sér nægt í þrjá daga ef hamfarir og neyðarástand dynur yfir.

Fram kemur í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra að á ráðstefnunni verði einnig rætt um áhættustjórnun og fer bæjarstjóri Reykjanesbæjar yfir það hvernig sé að stýra bæjarfélagi í almannavarnarástandi. Einnig ætlar íbúi og foreldri í Grindavík að gefa ráðstefnugestum innsýn í hvernig fjölskyldulífið var þegar jarðskjálftar gerðu íbúum lífið leitt og þegar eldgos birtist í bakgarðinum.

Sömuleiðis verður ný vefgátt sem almannavarnir opnuðu kynnt en þar er sveitarfélögum einfölduð sú vinna að greina og leysa þær krísur sem komi upp á hverju svæði fyrir sig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×