Skoðun

Gamli Sólvangur fær aukið hlutverk

Sigurður Þ. Ragnarsson skrifar

Miðflokkurinn í Hafnarfirði hefur átt sæti í verkefnastjórn Sólvangs á þessu kjörtímabili. Það er með vissu stolti sem ég lít til verunnar í stjórninni enda hefur stjórnin unnið sem einn maður að því að stuðla að umbyltingu í þjónustu við aldraða. Nú er þessu verkefni að ljúka og þakka ég öllum sem lagt hafa hönd á plóg.

Á kjörtímabilinu sem senn er á enda var lokið við byggingu „nýja“ Sólvangs í Hafnarfirði en þar er um að ræða 60 rýma hjúkrunardeild. Þegar sá áfangi náðist voru allir þeir 58 sem dvöldu á „gamla“ Sólvangi fluttir yfir í „nýja“ Sólvang þar sem þeir búa í rúmgóðum einstaklingsherbergjum.

Herbergjastærðir í „gamla“ Sólvangi uppfylltu ekki lengur skilyrði um lágmarksstærð rýma auk þess sem flest herbergin voru tvíbýli. Eftir flutninginn þurfti að ákveða hvað gert skyldi við eldra húsið enda tómt á 2. – 4. hæð. Risið var ekkert notað hin síðari ár, en á jarðhæð var og er starfandi dagdvöl sem ætluð einstaklingum 67 ára og eldri sem eru búsettir í Hafnarfirði alls 14 pláss. Einnig var komið á fót sérhæfðri dagþjálfun sem er fyrir einstaklinga með heilabilun, alls 12 pláss, sem útbúin var í sérstaklega góðri samvinnu við Alzheimersamtökin.

Gamli Sólvangur fær aukið hlutverk

Það er gaman frá því að segja að „gamli“ Sólvangur, sem byggður var 1942 af framsýnni bæjarstjórn þess tíma, tekur nú stakkaskiptum og stefnir í, innan skamms, að verða eitt flottasta heldriborgararými landsins. Auk dagdvalarinnar á fyrstu hæð hefur önnur hæðin verið endurgerð frá grunni með það að markmiði að uppfylla lög um aðbúnað á hjúkrunarheimilum og þar eru 11 pláss sem þegar eru skipuð. Nú eru þriðja og fjórða hæðin að verða tilbúnar en þar á að bjóða uppá nýjung, eða nokkuð sem kalla mætti hvíldarinnlagnir fyrir fólk sem býr heima en þarf á köflum að leggjast inn til að safna kröftum og fá nauðsynlega þjálfun til að geta búið lengur heima. Þetta er nýjung í öldrunarþjónustu og þarna eru að verða til 39 hvíldarrými sem eru gott sem tilbúin. Allt hefur þetta verið unnið í góðu samstarfi verkefnastjórnar Sólvangs, sviðstjóra Hafnarfjarðar og heilbrigðisráðuneytis undir forystu Svandísar Svavarsdóttur en málefni hjúkrunarheimila eru á valdsviði heilbrigðisráðuneytisins enda þótt Hafnarfjörður eigi Sólvang.

Síðasti kaflinn að hefjast

Nú er lokahnykkur eftir en það er að byggja 5. hæðina (risið) og endurgera garðinn. Risið er sökum brunavarnareglna ekki gjaldgengt til nýtni og því á að taka risið af í núverandi mynd og endurbyggja inndregna hæð með svölum umhverfis, fyrir ýmsa starfsemi eldri borgara.

Garðinn á að endurbyggja sem bæði mun nýtast öllum dvalargestum líka þeim sem glíma við heilabilun og að hluta almenningi.

Þar sem dýr gleðja og bæta andlegt heilbrigði þá verður í þessum nýja garði hænsnabú fyrir mest sex hænur, sem allir bæjarbúar geta barið augum.

Með ötulli starfsemi verkefnastjórnar Sólvangs auk sviðstjóra framkvæmdasviðs og fjölskyldusviðs, hefur tekist að halda öllum kostnaði, þ.e. framkvæmdum við aðra, þriðju og fjórðu hæð, í samræmi við kostnaðaráætlanir.

Höfundur er bæjarfulltrúi M-lista, hefur setið í verkefnastjórn Sólvangs á kjörtímabilinu og er oddviti M-lista í komandi bæjarstjórnarkosningum.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×