Aftur tilkynnt um rangan sigurvegara í Morfís Smári Jökull Jónsson skrifar 16. apríl 2022 17:59 Menntaskólinn í Reykjavík fékk ekki að fagna sigri að keppni lokinni í gær en var úrskurðaður sigurvegari síðar um kvöldið. Vísir/Vilhelm Verslunarskóli Íslands var ranglega úrskurðaður sigurvegari í viðureign skólans gegn Menntaskólanum í Reykjavík í MORFÍS í gærkvöldi. Þetta er í annað sinn á innan við ári sem samskonar mistök eiga sér stað í keppninni.
Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi, einnig þekkt sem MORFÍS, hefur verið fastur liði í félagslífi framhaldsskóla landsins um áraraðir og oftar en ekki vakið athygli almennings enda mikið líf og fjör oft í kringum keppnina. Í gær mættust Menntaskólinn í Reykjavík og Verslunarskóli Íslands í undanúrslitum keppninnar en skólarnir hafa marga hildina háð í gegnum árin bæði í MORFÍS sem og spurningakeppninni Gettu betur. Að lokinni keppni í gærkvöldi var Verslunarskólinn tilkynntur sigurvegari og hafði þar með tryggt sér sæti í úrslitaviðureign gegn Menntaskólanum á Akureyri. Á Facebook síðu keppninnar er hins vegar greint frá mistökum sem áttu sér stað áður en úrslit voru tilkynnt. Innsláttarvilla í dómaraskjali varð til þess að stigin voru reiknuð rangt og Menntaskólinn í Reykjavík því sigurvegari og fer í úrslit. Í færslunni segir að innsláttarvillan hafi falist í því að gleymst hafi að draga frá refsistig Verslunarskólans frá oddadómara og að eftir ítarlega skoðun sé MR því réttmætur sigurvegari. Þetta er í annað sinn á innan við ári sem samskonar mistök eiga sér stað í MORFÍS. Í úrslitaviðureign keppninnar í fyrra var tilkynnt að Flensborgarskólinn hefði unnið sigur en skömmu síðar var svo tilkynnt að mistök hefðu átt sér stað og Verslunarskólinn væri sigurvegari.
Skóla - og menntamál Framhaldsskólar Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Verslaði fyrir háar upphæðir með stolnu kreditkorti Innlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Lítið jökulhlaup hafið í Skálm Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Sundrun á hægri vængnum og örvænting meðal fyrstu kaupenda Verslaði fyrir háar upphæðir með stolnu kreditkorti „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Ullarvika til heiðurs íslensku sauðkindinni „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Verkfall á hjúkrunarheimilum ef lausn næst ekki á mánudag „Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Úrbætur á gæsluvarðhaldsúrræði fyrir unglinga og upphaf körfuboltatímabilsins Skoða betri úrræði fyrir unglinga í gæsluvarðhaldi Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Hafði „útdraganlega kylfu“ meðferðis Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Ekki hægt að aldursskipta börnum á Stuðlum í miðjum stormi „Skítastaða“ á Stuðlum, vongóðir nýliðar og búð þar sem allt er ókeypis „Það verður að láta reyna á þessar kærur“ Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Mennirnir tveir fundnir Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Sjá meira