Skoðun

Hækkandi á­burðar­verð ógnar mat­væla­fram­leiðslu og fæðu­öryggi á heims­vísu

Erna Bjarnadóttir skrifar

Undanfarnar vikur og mánuði hefur fæðuöryggi æ oftar borið á góma, fyrst vegna áhrifa heimsfaraldurs Covid-19 á aðfangakeðjur heims og nú vegna stríðsreksturs Rússa í Úkraínu.

Í nýrri útgáfu AMIS[1] á greiningu á mörkuðum fyrir landbúnaðarvörur og helstu aðföng, er farið yfir þróun og horfur áburðarverðs[2]. Í marsmánuði einum voru hækkanir mældar í tveggja stafa tölum. Ammóníum, sem er ásamt þvagefni undirstaða köfnunarefnis áburðar (N), hækkaði í mars um 14,9% frá fyrra mánuði, á heimsvísu . Síðastliðna 12 mánuði nemur hækkunin nú tæplega 180%. Á Evrópumarkaði nemur hækkunin nærri 200% á 12 mánaða tímabili. Á Bandaríkjamarkaði hefur verð á fosfati hækkað um tæp 80%. Á sama tíma hefur kalíum áburður hefur hækkað um ríflega 142%. Vegna ástandsins í Úkraínu og viðskiptabanns á Rússland birtir AMIS ekki tölur um verðþróun á fosfati og kalíum fyrir Svartahafssvæðið, eins og venja hefur verið.

Útflutningsbönn og viðskiptaþvinganir

Útflutningur á áburði frá Rússlandi hefur nú að miklu leyti stöðvast vegna viðskiptaþvingana. Þá lagði landbúnaðarráðuneytið í Úkraínu í reynd bann við útflutningi á tilbúnum áburði frá og með 12 mars sl., til að verja innlendan markað. Þá hefur útflutningur á kalíum frá Hvíta Rússlandi sem og Rússlandi, einnig stöðvast en þessi tvö lönd framleiða 40% kalíum áburðar í heiminum. Áður hafði Kína bannað útflutning á fosfati til að tryggja framboð þess til eigin landbúnaðar, sem eykur enn á verðhækkanir á heimsvísu.

Framboð á hveiti og maís dregst saman

Jarðgas hefur hækkað um 87,3% síðustu 12 mánuði samkvæmt AMIS, þar af 3,1% milli febrúar og mars 2022 , en jarðgas er mikilvægur orkugjafi við áburðarframleiðslu heimsins. Þessar gríðarlegu hækkanir á áburði sem og hækkun á verði annarra aðfanga til landbúnaðar ógna nú lífskjörum fólks um heim allan. Búist var við að Úkraína myndi flytja út 20 milljón tonn af hveiti og maís á tímabilinu febrúar til maí nú í ár. Hlutdeild Úkraínu í heimsmarkaði hveitis er um 8% og 13% fyrir maís (www.worldstopexports.com). Nú eru innviðir í landinu stórskemmdir og óljóst er hve mikil áhrif þess verða til framtíðar. Þá skortir vinnuafl, eldsneyti og áburð og akrar hafa spillst. Auk þess eru bændur ekki öruggir við störf sín vegna átakanna og afleiðinga þeirra. Því eru miklar áhyggjur af því hve mikið framboð verður á kornvörum og jurtaolíu frá Úkraínu á komandi uppskeru ári (2022/2023). Til skemmri tíma hið minnsta mun það leiða til skorts á þessum matvælum á heimsmarkaði.

Höfundur er hagfræðingur og verkefnastjóri hjá MS.

[1] Agrigultural Market Information System

[2] http://www.amis-outlook.org/fileadmin/user_upload/amis/docs/Market_monitor/AMIS_Market_Monitor_current.pdf




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×