Fótbolti

Wolfsburg gjörsigraði Bayern í Íslendingaslagnum

Atli Arason skrifar
Sveindís Jane Jónsdóttir með Maria-Joelle Wedemeyer, eina af markaskorurum leiksins, í bakgrunni.
Sveindís Jane Jónsdóttir með Maria-Joelle Wedemeyer, eina af markaskorurum leiksins, í bakgrunni. Vincent Mignott/Getty Images

Wolfsburg átti ekki í neinum stökustu vandræðum með Bayern München í þýska fótboltanum í dag. Wolfsburg vann 6-0 stórsigur í uppgjöri toppliðanna.

Sveindís Jane Jónsdóttir var í byrjunarliði Wolfsburg og spilaði í 75 mínútur. Glódís Perla Viggósdóttir byrjaði inn á hjá Bayern og spilaði allar 90 mínúturnar. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Cecelía Rán Rúnarsdóttir komu báðar inn á leikvöllinn í hálfleik hjá Bayern en þær náðu ekki að stöðva yfirburði Wolfsburg.

Huth, Wedemeyer og Wassmuth gerðu mörk Wolfsburg í fyrri hálfleik áður en Popp, Oberdorf og Pajor bættu við öðrum þremur mörkum í síðari hálfleik.

Eftir leikinn ef Wolfsburg eitt í efsta sæti deildarinnar með 50 stig, fjögurra stiga forskot á Bayern sem er í öðru sæti þegar þrjár umferðir eru eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×