Framherji KR fótbrotnaði í æfingaleik Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. apríl 2022 11:15 Kristján Flóki verður frá næstu vikurnar hið minnsta. Vísir/Bára Dröfn Kristján Flóki Finnbogason, framherji Bestu-deildarliðs KR í knattspyrnu, fótbrotnaði í æfingaleik gegn HK. Óvíst er hvenær hann getur snúið aftur á völlinn en hann bíður nú eftir að komast í aðgerð.
Frá þessu er greint á vef Fótbolta.net en þar er rætt við Rúnar Kristinsson, þjálfara KR, um meiðslin sem og Kristján Flóka sjálfan. „Þetta lítur illa út og er mjög slæmt. Kristján Flóki er í gifsi og er að bíða eftir að komast í aðgerð. Þetta er fótbrot,“ sagði Rúnar en svo virðist sem lítið bein utanvert á fótleggnum hafi brotnað. „Hann fékk greiningu seint í gærkvöldi og bíður nú eftir svari frá læknum um hvenær hann kemst í aðgerð,“ bætti Rúnar við en KR vann HK 1-0 í gær, fimmtudag. „Ég verð frá í einhvern tíma, veit ekki nákvæmlega hversu langan,“ sagði Kristján Flóki sjálfur í viðtali við Fótbolti.net. Þetta er mikið áfall fyrir KR-inga en Kristján Flóki hafði spilað vel á undirbúningstímabilinu og var ætlað stórt hlutverk hjá liðinu í sumar. Sérstaklega þar sem Kjartan Henry Finnbogason byrjar mótið í tveggja leikja banni og hefur verið að glíma við meiðsli það sem af er ári. KR byrjar Bestu-deildina á útivelli gegn Fram þann 20. apríl en enn er óvíst hvar sá leikur fer fram.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla KR Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Hefur Ben Simmons náð botninum? Körfubolti Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Fótbolti Andy Murray þjálfar erkióvininn Sport Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Sjá meira