Innlent

Fram­sókn kynnir fram­boðs­lista í Grinda­vík

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Framboðslisti Framsóknar í Grindavík.
Framboðslisti Framsóknar í Grindavík. Framsókn

Framsóknarflokkurinn hefur samþykkt tillögu uppstillingarnefndar að lista flokksins til sveitarstjórnarkosninga í Grindavík í vor. Ásrún Helga Kristinsdóttir kennari vermir fyrsta sæti listans og í öðru sæti er Sverrir Auðunsson framkvæmdastjóri.

Uppstillinganefnd flokksins hefur verið að störfum síðustu vikur en kosið var um listann á félagsfundi fyrr í kvöld. 

Nýkjörinn oddviti Framsóknar í Grindavík kveðst spennt fyrir þeirri vinnu sem framundan er: „Ég veit að hér er fólk sem er tilbúið að leggja á sig vinnu til að gera samfélagið okkar betra. Bæði fólk á listanum og líka fólk sem er til hliðar við hann. Við erum með gott og sterkt lið og ætlum okkar að spila sókn og hafa gaman af kosningabaráttunni,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir oddviti.

Listi Framsóknar 2022:

1. Ásrún Helga Kristinsdóttir, kennari, 47 ára

2. Sverrir Auðunsson, framkvæmdastjóri, 46 ára

3. Rannveig Jónína Guðmundsdóttir – kennari, 37 ára

4. Viktor Guðberg Hauksson – rafvirki og knattspyrnumaður, 21 árs

5. Vilhjálmur Ragnar Kristjánsson, sölustjóri heildsölu, 34 ára

6. Sigurveig Margrét Önundardóttir, sérkennari, 46 ára

7. Valgerður Jennýjardóttir, leiðbeinandi, 37 ára

8. Þórunn Erlingsdóttir, íþróttafræðingur, 40 ára

9. Páll Jóhann Pálsson, útvegsbóndi, 64 ára

10. Hólmfríður Karlsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, 41 árs

11. Hilmir Kristjánsson, sjúkraþjálfaranemi, 25 árs

12. Klara Bjarnadóttir, rekstrarstjóri, 45 ára

13. Gunnar Vilbergsson, eldri borgara, 76 ára

14. Bjarni Andrésson, vélstjóri, 72 ára




Fleiri fréttir

Sjá meira


×