Innlent

Listi VG á Akur­eyri sam­þykktur

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Listinn var samþykktur á félagsfundi í dag.
Listinn var samþykktur á félagsfundi í dag. VG

Framboðslisti Vinstri grænna á Akureyri, fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor, var samþykktur á félagsfundi í bænum í dag. Varabæjarfulltrúinn Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir leiðir listann, en áður hafði farið fram bindandi forval um efstu sex sæti listans.

Í tilkynningu frá VG kemur fram að Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður flokksins í Norðausturkjördæmi, hafi verið sérstakur gestur fundarins og ávarpað frambjóðendur og gesti.

Hér má sjá listann í heild sinni:

  1. Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, varabæjarfulltrúi, Akureyri
  2. Ásrún Ýr Gestsdóttir, háskólanemi, Hrísey
  3. Sif Jóhannesar Ástudóttir, verkefnastjóri, Akureyri
  4. Hermann Arason, framkvæmdastjóri, Akureyri
  5. Einar Gauti Helgason, matreiðslumeistari, Akureyri
  6. Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi, Akureyri
  7. Ólafur Kjartansson, vélvirki og fyrrv. framhaldskólakennari, Akureyri
  8. Herdís Júlía Júlíusdóttir, iðjuþjálfi, Akureyri
  9. Inga Elísabet Vésteinsdóttir, landfræðingur, Akureyri
  10. Angantýr Ómar Ásgeirsson, háskólanemi, Akureyri
  11. Katla Tryggvadóttir, menntaskólanemi, Akureyri
  12. Hildur Friðriksdóttir, alþjóðafulltrúi hjá HA , Akureyri
  13. Valur Sæmundsson, tölvunarfræðingur, Akureyri
  14. Karen Nótt Halldórsdóttir, formaður hverfisráðs Grímseyjar, Grímsey
  15. Davíð Örvar Hansson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Akureyri
  16. Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri, Akureyri
  17. Helgi Þorbjörn Svavarsson, verkefnastjóri og hornleikari, Akureyri
  18. Fayrouz Nouh, doktorsnemi, Akureyri
  19. Guðmundur Ármann Sigurjónsson, myndlistarmaður, Akureyri
  20. Dýrleif Skjóldal, leikskólakennari og sundþjálfari, Akureyri
  21. Ólafur Þ. Jónsson, fyrrv. vitavörður, Akureyri
  22. Kristín Sigfúsdóttir, fyrrv. bæjarfulltrúi og kennari, Akureyri



Fleiri fréttir

Sjá meira


×