Opið bréf til Borgarstjórnar Reykjavíkur Árni H. Kristjánsson, Hrafn Jökulsson, Tómas V. Albertsson og Viðar Eggertsson skrifa 21. mars 2022 10:30 Réttlæti gerir eftirfarandi athugasemdir við vinnubrögð í tengslum við „Frumvarp til laga um heimild Reykjavíkurborgar til að skipa nefnd til að kanna starfsemi vöggustofa“. Hinn 18. mars sl. sátu fulltrúar Réttlætis fund í Ráðhúsinu með Ebbu Schram, borgarlögmanni, og Þorsteini Gunnarssyni, borgarritara. Efni fundarins var að ræða eftirfarandi markmið og meginverkefni fyrirhugaðrar nefndar samkvæmt útlistun borgarráðs: a. Að lýsa starfsemi vöggustofanna, hlutverki þeirra í barnaverndar- og/eða uppeldismálum og tildrögum þess að börn voru vistuð þar á því tímabili sem um ræðir. b. Að leitast við að staðreyna eins og kostur er hvort og þá í hvaða mæli börn sem vistuð voru á stofnuninni hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi meðan á dvölinni stóð. c. Að lýsa því hvernig eftirliti Reykjavíkurborgar og ríkisins með vöggustofunum var háttað. d. Að lýsa öðrum atriðum sem tengjast starfsemi vöggustofanna og nefndin telur þarfnast skoðunar. e. Nefndin skal skila skýrslu um störf sín til borgarráðs. f. Leggja grundvöll að tillögum til borgarráðs um frekari viðbrögð ef ástæða þykir til. Þessi markmið og meginverkefni fyrirhugaðrar rannsóknarnefndar eru að mati Réttlætis röng og illa skilgreind þar sem ekkert er fast í hendi. Raunar verður alls ekki séð að „athugun“ sem grundvallast á uppgefnum markmiðum skili markverðum niðurstöðum. Ef texti markmiða og meginverkefna er skoðaður þá kemur í ljós að orðið „rannsókn“ er aldrei nefnt. Þess í stað eru orðin „athugun“, „að lýsa“ og „leitast við“ notuð og það er ekki hægt að túlka öðruvísi en að grunnt verði kafað. Í þessu sambandi má nefna að á fundinum kom til tals orðið „athugun“ sem borgaryfirvöld leggja áherslu á að nota, af einhverjum óljósum ástæðum, í stað orðsins „rannsókn“. Ebba og Þorsteinn sögðu engan mun vera á merkingu orðanna en skv. málskilningi flestra er þar nokkur munur. Samkvæmt orðabókum þá merkir orðið „athugun“ eftirgrennslan, kanna, hugsa út í eitthvað en orðið „rannsókn“ að skoða niður í kjölinn, athuga nákvæmlega, brjóta til mergjar. Þá ber eftirfarandi markmið skv. borgarráði með sér skilningsleysi á starfsháttum vöggustofa borgarinnar: „Að leitast við að staðreyna eins og kostur er hvort og þá í hvaða mæli börn sem vistuð voru á stofnuninni hafi sætt illri meðferð...“ Það er óumdeild staðreynd, studd með mörgum rannsóknum, að starfshættir þeir sem tíðkuðust á vöggustofum borgarinnar buðu ekki upp á annað en skaðlega og illa meðferð á öllum börnum sem þar voru vistuð. Í því fólust m.a. mannréttindabrot og brot á landslögum. Þetta atriði er útgangspunktur og því þarf ekki að rannsaka sérstaklega „hvort“ heldur „hvers vegna. Réttlæti mótmælti ofangreindu moði með greinargerð þar sem sex spurningar lágu til grundvallar. Þær voru síðan rökstuddar ítarlega og sýnt fram á nauðsyn þess að fá svör við þeim. Á fyrrnefndum fundi var enginn vilji til þess að breyta orðalagi markmiða og meginverkefna. Ebba vísaði í lið „d“ í markmiðunum og fullyrti að hann dekkaði alla þætti sem snúa að rannsókn á vöggustofum borgarinnar: „Að lýsa öðrum atriðum sem tengjast starfsemi vöggustofanna og nefndin telur þarfnast skoðunar.“ Eins og sjá má á þessum orðhengilshætti þá er nefndinni í sjálfsvald sett hverju hún „lýsir“ og hvað hún „skoðar“. Fyrirmælin sem eiga að dekka allt sem rannsaka þarf eru í raun engin og hvað rannsakað verður veltur aðeins á huglægu mati nefndarmanna. Ebba sagði að borgaryfirvöld væru bundin af texta frumvarpsins og því óhægt um vik. Þegar frumvarpið var síðan skoðað þá kemur í ljós að þetta stenst ekki skoðun. Í inngangi greinargerðar með frumvarpinu segir að það sé samið í samráði við Reykjavíkurborg og það hefur varla farið framhjá borgarlögmanni. Í 5. gr. frumvarpsins segir: „Reykjavíkurborg ákveður skipan nefndarinnar, skipunartíma og þóknun og setur henni erindisbréf þar sem nánar er mælt fyrir um verkefni nefndarinnar.“ Samkvæmt þessu þá getur Reykjavíkurborg haft áhrif á texta frumvarpsins, eins og augljóslega hefur þegar verið gert, og auðvitað markmið og meginverkefni rannsóknarnefndarinnar. Réttlæti vill því hvetja kjörna fulltrúa borgarinnar til að sjá til þess að þetta verði skilgreint upp á nýtt og þá í anda þess loforðs sem borgarstjóri gaf fulltrúum Réttlætis sl. sumar. Sjaldan er ein báran stök. Í frumvarpinu og fylgiskjali þess, „Mat á jafnréttis- og kostnaðaráhrifum lagasetningar„ verður ekki annað séð en að rannsóknin eigi að grundvallast að stórum hluta á kynjafræði enda fyrirferðamest í lýsingum á markmiðum. Þar er talað um að kyngreina tölfræðigögn, kynjaða vídd, skoða stöðu kynjanna innan málaflokksins o.s.frv. Svo segir: „Þá er mikilvægt að nefndaraðilar séu meðvituð um kynjaða vídd samfélagsins í fortíð og nútíð. Það má velta fyrir sér hvort mögulegar afleiðingar vanrækslu í frumbernsku hafi ólík áhrif á drengi og stúlkur, m.a. vegna kynjaðra staðalmynda sem gera drengjum síður kleift að tjá og vinna úr tilfinningum sínum á uppbyggilegan hátt. Þá þarf einnig að hafa í huga hversu algengt kynbundið og kynferðislegt ofbeldi er, og þegar slík áföll koma ofan á önnur áföll þá getur það haft samlegðaráhrif á heilsu og líðan kvenna, en rannsóknir hafa sýnt að það er kynbundinn munur á heilsu þar sem heilsa kvenna er gjarnan lakari en karla.“ Það er sjálfsagt að kynjafræðingar skoði vöggustofumálið þegar rannsókn lýkur en kynjafræði getur ekki verið lögð til grundvallar henni. Þessi nálgun stangast á við það sem lagt var upp með, enda aldrei verið nefnt á nafn, og þá hefur aldrei verið óskað eftir slíkri rannsókn. Á móti þá er brýnt að hafa að leiðarljósi við rannsókn málsins eftirfarandi grundvallarspurningar: Grundvallarspurningar sem rannsókn þarf að svara að mati Réttlætis Hverjar voru ástæður þess að börn voru vistuð á vöggustofum borgarinnar? Hver var ástæða þess að stórskaðlegir starfshættir, sem gengu þvert gegn fyrirliggjandi rannsóknum, heilbrigðri skynsemi og mannlegu eðli, voru við lýði á vöggustofum borgarinnar? Hvernig þrifust börn á meðan þau voru vistuð á vöggustofum borgarinnar? Hversu mörg börn voru ættleidd eða vistuð í fóstur frá vöggustofum borgarinnar og á hvaða forsendum? Hversu mörg börn létust á vöggustofum borgarinnar og hver var dánarorsökin? Hvað varð um börn sem vistuð voru á vöggustofum borgarinnar og hvernig vegnaði þeim í lífinu? Meðfylgjandi er greinargerð þar sem þessar grundvallarspurningar eru rökstuddar ítarlega. Þar kemur vel fram nauðsyn þess að einmitt þessum spurningum sé svarað. Inn í grundvallarspurningarnar fléttast aðrar spurningar sem einnig er brýnt að fá svör við. Vonbrigðin með vinnubrögð borgarinnar í þessu máli eru gífurleg. Að öllu óbreyttu þá verður ekki með nokkru móti séð að úr verði alvöru rannsókn eins og lagt var upp með og borgarstjóri lofaði. Allt er þetta mannanna verk og því eru röng og illa skilgreind markmið og meginverkefni fyrirhugaðrar rannsóknarnefndar ekkert náttúrulögmál sem ekki er hægt að hrófla við. Það er von Réttlætis að borgaryfirvöld leiðrétti augljós mistök og endurskilgreini markmið og meginverkefni nefndarinnar. Við þá vinnu þarf að taka tillit til gildra og réttmætra ábendinga Réttlætis — vöggustofubarnanna sem málið varðar og eiga hagsmuna að gæta. Fyrir hönd Réttlætis, Árni H. Kristjánsson Hrafn Jökulsson Tómas V. Albertsson Viðar Eggertsson Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Vöggustofur í Reykjavík Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Glútenlaust gull á grillið Anna Gunndís Guðmundsdóttir Skoðun Heilræði fyrir Nýhaldið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Skoðun Stundum hefur Gunnar Smári rétt fyrir sér Magnús Árni Skjöld Magnússon Skoðun „Hæ ástin, þarf að millifæra, getur þú samþykkt beiðnina?“ Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Evrópa og myrkrið framundan Hilmar Þór Hilmarsson Skoðun Af hverju að byggja Coda Terminal? Ólafur Elínarson,Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir Skoðun Algeng þvæla um Evrópusambandið Jón Frímann Jónsson Skoðun Hvatning til mótshaldara Landsmóts hestamanna Linda Karen Gunnarsdóttir Skoðun Stórnotendur eru kjölfestan í íslenska raforkukerfinu Guðríður Eldey Arnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stórnotendur eru kjölfestan í íslenska raforkukerfinu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Ert þú í góðu netsambandi? Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Evrópa og myrkrið framundan Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Heilræði fyrir Nýhaldið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar Skoðun Glútenlaust gull á grillið Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Kaupin á eyrinni Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lokunaruppboð í Kauphöllinni Baldur Thorlacius skrifar Skoðun Viðreisn mun leggja fram tillögu um íbúakosningu um Coda Terminal verkefnið í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Ferðatryggingar og val á kreditkorti Svandís Edda Hólm Jónudóttir skrifar Skoðun Af hverju að byggja Coda Terminal? Ólafur Elínarson,Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Hljóð úr horni Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun ESB fyrir almenning Oddný G. Harðardóttir skrifar Skoðun Strámaðurinn mikli Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Árið er 2024 Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Samkeppni í nýju ljósi Páll Hermannsson skrifar Skoðun Það er verið að grafa dýpri fátæktargjá Rúnar Sigurjónsson skrifar Skoðun „Hæ ástin, þarf að millifæra, getur þú samþykkt beiðnina?“ Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Algeng þvæla um Evrópusambandið Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Stundum hefur Gunnar Smári rétt fyrir sér Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Hamingjan grundvallast á gæðum hugsananna Árni Már Jensson skrifar Skoðun Hátt reitt til höggs Hjálmar Jónsson skrifar Skoðun Brennt barn forðast eldinn Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Varnir gegn gagnagíslatökum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Uppbygging almannahagsmuna á Íslandi Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar Skoðun Málað sig út í horn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Full orkuskipti ríkisflota og samgönguþjónustu fyrir 2030 Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Einelti er veruleikabrenglun Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun „Lýtalaus íslenska“ er ekki til Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Hvatning til mótshaldara Landsmóts hestamanna Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áróður Kremls gegn Úkraínu og NATO Guðni Freyr Öfjörð skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Viðreisn mun leggja fram tillögu um íbúakosningu um Coda Terminal verkefnið í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun