Fótbolti

Dortmund viðheldur pressu á Bayern

Atli Arason skrifar
Axel Witsel fylgist með Emil Hallfreðssyni í leik Íslands og Belgíu á Laugardalsvelli.
Axel Witsel fylgist með Emil Hallfreðssyni í leik Íslands og Belgíu á Laugardalsvelli. Vilhelm Gunnarsson

Borussia Dortmund vann 0-1 sigur á Mainz í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Sigurmark Dortmund kom á elleftu stundu þegar Axel Witsel skoraði á 87. mínútu leiksins eftir undirbúning Giovanni Reyna.

Markið hjá Witsel var hans fyrsta mark í meira en tvö ár og einungis annað tap Mainz á heimavelli á þessu tímabili varð að staðreynd. 

Sigur Dortmund þýðir að þeim tekst að halda pressu á topplið Bayern München en Dortmund er nú fjórum stigum á eftir Bayern þegar níu deildarleikir eru eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×