Frammistaðan á EM sannfærði þjálfara Ribe-Esbjerg um að fá Elvar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. mars 2022 14:39 Elvar Ásgeirsson í búningi Ribe-Esbjerg. ribe-esbjerg Elvar Ásgeirsson, landsliðsmaður í handbolta, hefur skrifað undir tveggja ára samning við danska úrvalsdeildarliðið Ribe-Esbjerg. Hann kemur til liðsins frá Nancy í Frakklandi eftir þetta tímabil.
Andres Thomsen, þjálfari Ribe-Esbjerg, segist lengi hafa verið með Elvar í sigtinu og ákvað að láta til skarar skríða eftir óvænta, en stórgóða, innkomu hans á EM í janúar. „Eftir frábæra frammistöðu á EM hlakka ég til samstarfsins. Með Elvari fáum við hæfileikaríkan mann sem er góður á báðum endum vallarins. Fjölhæfni hans mun nýtast liðinu vel,“ sagði Thomsen um Elvar. Mosfellingurinn gekk í raðir Nancy frá Stuttgart í Þýskalandi í febrúar á síðasta ári. Hann hefur leikið sem atvinnumaður erlendis síðan 2019. Elvar er ekki eini landsliðsmaðurinn sem fer til Ribe-Esbjerg í sumar því markvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson hefur einnig samið við liðið. Hann þarf ekki fara langt en hann leikur með Kolding sem er einnig á Jótlandi. Elvar, sem er 27 ára skytta eða miðjumaður, kom óvænt inn í íslenska landsliðið á EM eftir að nokkrir lykilmenn heltust úr lestinni vegna kórónuveirusmita. Hann lék fimm leiki á mótinu en það voru jafnframt hans fyrstu A-landsleikir á ferlinum. Ribe-Esbjerg er í 8. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með tuttugu stig eftir tuttugu umferðir.
Danski handboltinn Franski handboltinn Mest lesið „Held að hann sé hundfúll að vera ekki í liðinu“ Handbolti Segja Ronaldo hafa misst af leik til að sleppa við svipuhögg Fótbolti „Þér að kenna ef við vinnum ekki deildina“ Enski boltinn Þriðja meðgangan á fimm árum: Skórnir komnir á hilluna fyrir fullt og allt Handbolti Segir það þjakandi og einmanalegt að vera hjá Man United Enski boltinn Gæti fengið bann sem gildir um allan heim Fótbolti Hafnarfjörður keypti Skessuna fyrir 1.190 milljónir Fótbolti „Eins manns dauði er annars brauð“ Handbolti Ofurtölvan setur Liverpool á toppinn og Arsenal ofar Real Madrid Fótbolti Barn beit dómarann á mjög viðkvæman stað og leik var aflýst Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Haukar - FH | Risaleikur á Ásvöllum Hundrað prósenta Sigvaldi í úrvalsliði Þriðja meðgangan á fimm árum: Skórnir komnir á hilluna fyrir fullt og allt „Eins manns dauði er annars brauð“ „Held að hann sé hundfúll að vera ekki í liðinu“ Erlingur tekur aftur við Eyjaliðinu Hópurinn gegn Grikkjum: Nítján ára nýliði í markinu Svona var blaðamannafundur Snorra Einn sá allra besti á Íslandi samdi við sænsku meistarana Frábær leikur Andra dugði ekki til Myndasyrpa frá fögnuði Fram Tilkynnti að hún væri hætt í hjartnæmu viðtali Myndasyrpa frá fögnuðu Hauka „Hvort við segjum núna titilinn eða tittlinginn, ég veit það ekki“ „Við vorum ógeðslega flottir í þessum tveimur leikjum“ „Þegar menn uppskera er það stórkostlegt“ „Ég er bara klökkur“ „Grimmd og gleði“ skilaði sannfærandi sigri Uppgjörið: Stjarnan - Fram 25-31 | Fram bikarmeistari Uppgjörið: Fram - Haukar 20-25 | Haukar bikarmeistarar í fyrsta sinn í átján ár Hafa tapað ellefu af tólf úrslitaleikjum en eini sigurinn kom gegn Stjörnunni „Fór að hugsa hvað ég væri eiginlega að gera“ „Settum í sjötta gír í seinni hálfleik“ „Getum gengið stoltar frá borði“ Uppgjörið: Grótta - Haukar 21-31 | Haukar munu etja keppi við Fram í úrslitum Aron og Bjarki Már gerðu sitt í París Magnaður Sigvaldi sökkti Magdeburg „Viðurkenni að maður fékk fiðring í magann” Elliði Snær og Andri Már í sigurliðum Uppgjörið: Fram - Valur 22-20 | Fram í bikarúrslit Sjá meira