Börsungar upp í þriðja sæti eftir endurkomusigur

Memphis Depay skoraði sigurmark Barcelona í dag.
Memphis Depay skoraði sigurmark Barcelona í dag. Aitor Alcalde/Getty Images

Barcelona vann mikilvægan 2-1 útisigur er liðið heimsótti Elche í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Það voru heimamenn í Elche sem tóku forystuna þegar Fidel setti boltann í netið stuttu fyrir hálfleik og staðan var því 1-0 þegar gengið var til búningsherbergja.

Gestirnir þurftu því á marki að halda og Ferran Torres jafnaði metin fyrir Börsunga eftir undirbúning Jordi Alba á 60. mínútu.

Börsungar voru mun meira með boltann og það skilaði sér loksins þegar rúmar fimm mínútur voru til leiksloka. Antonio Barragan handlék þá knöttinn innan eigin vítateigs og ekkert annað í stöðunni en að dæma vítaspyrnu. Memphis Depay fór á punktinn og tryggði gestunum sigurinn.

Ef heimamenn áttu einhvern möguleika á að jafna metin þá fauk sá möguleiki endanlega út um gluggann þegar Javier Pastore náði sér í beint rautt spjald og liðsmenn Elche þurftu því að leika seinustu mínúturnar manni færri.

Niðurstaðan varð því 2-1 sigur Barcelona og liðið er komið í þriðja sæti spænsku deildarinnar með 48 stig. Elche situr hins vegar í  14. sæti með 29 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira