Skoðun

Ráðherrar fara í banka

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar

Það er orðið áberandi hvað ráðherrar gera mikið af því að varpa fram yfirlýsingum án samræmis við stefnu og aðgerðir eigin ríkisstjórnar.

Nú eru það bankamálin.

Ólíkt mörgum hafa stóru bankarnir hagnast mikið á síðustu misserum. Eftir að nýjustu tölur birtust lýsti menningar- og viðskiptaráðherra (sem fer ekki með bankamál) því allt í einu yfir að bankarnir þyrftu að greiðan niður vexti til að létta undir með viðskiptavinum sínum, ella gæti þurft að setja bankaskattinn á aftur. Áhugavert útspil frá ráðherra ríkisstjórnar sem er nýbúin að afnema bankaskattinn og hæðast að þeim sem svo mikið sem spurðu út í framkvæmdina. Ráðherrann hlýtur að hafa verið búinn að ræða málið við ráðherra bankamála, fjármálaráðherrann, sem myndi sjá um að leggja bankaskattinn á að nýju (rétt eftir að hann sagði fráleitt að viðhalda skattinum og státaði sig ítrekað af afléttingunni).

Forsætisráðherra benti svo á að ríkið ætti enn Landsbankann og meirihluta í Íslandsbanka og sagði að arðgreiðslur þaðan yrðu „nýttar í mikilvægar félagslegar aðgerðir til þess að takast á við uppbyggingu að loknum faraldri“. Samtímis tilkynnti fjármálaráðuneytið að fjármálaráðherra hefði samþykkt að selja Íslandsbanka að fullu.

Forsætisráðherrann taldi lykilatriði að bankarnir sýni almenningi svigrúm og skilning: „Ég held að það sé mjög mikilvægt að bankarnir taki þátt í því verkefni með okkur að komast út úr faraldrinum og sýni sínum viðskiptamönnum þetta svigrúm“. Þegar fréttamaður Ríkisútvarpsins spurði hvernig það yrði tryggt svaraði ráðherrann því til að viðskiptaráðherrann (sá sem ekki fer með bankamál) hefði sagst ætla að eiga samtal við forsvarsmenn bankanna.

Þegar ríkið endurheimti bankana auk gríðarhárra greiðslna frá slitabúunum gerðist það ekki með því að spyrja vogunarsjóðina einfaldlega hvort það hljómaði ekki vel að sýna ábyrgð og styðja uppbyggingu efnahagslífsins eftir mikið áfall. Það gerðist með pólitískri sýn, ákvarðanatöku og framkvæmdum. Á þeim tíma nýtti ég hvert tækifæri til að minna á að yfirtaka bankanna væri bara fyrri hlutinn. Næst þyrfti að nýta þá einstöku stöðu sem þannig skapaðist til að endurskipuleggja og laga fjármálakerfið svo það myndi þjóna íslenskum almenningi og fyrirtækjum betur.

Fyrir kosningarnar 2017 lagði Miðflokkurinn fram heildaráætlun um endurskipulagningu fjármálakerfisins. Ríkisstjórnin fór í þveröfuga átt. Stærsta bankanum var skilað til vogunarsjóðanna (sem biðu ekki lengi með að útdeila arði) og svo ráðist í að selja Íslandsbanka. Það var gert án þess að nýta fyrst tækifærið til að endurbæta fjármálakerfið. Ekki var tekið í mál að veita almenningi beina aðkomu að bankakerfinu með því að afhenda öllum landsmönnum til jafns hlut í Íslandsbanka. Það eitt hefði haft meiri áhrif til að bæta kjör almennings en spjall um samfélagslega ábyrgð.

Bankarnir gætu þó brugðist við. Þeir gætu tekið ráðherra ríkisstjórnarinnar sér til fyrirmyndar og sagt eitthvað sem þeir telja að fólk vilji heyra án þess að þurfa nokkurn tímann að standa við það.

Höfundur er formaður Miðflokksins.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×