Sport

Hófí Dóra í 32. sæti í síðustu grein sinni í Peking

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir á ferðinni í risasviginu.
Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir á ferðinni í risasviginu. getty/Alexis Boichard

Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir lenti í 32. sæti í risasvigi á Vetrarólympíuleikunum í Peking. Hún kom í mark á 1:17,41 mínútu.

Lara Gut-Behrami frá Sviss hrósaði sigri í risasviginu á 1:13,51 mínútu. Hún var 0,22 sekúndum á undan Mirjam Puncher frá Austurríki. Landa Gut-Behramis, Michelle Gisin, varð þriðja á 1:13,81 mínútu.

Mikaela Shiffrin, sem keyrði út af í svigi og stórsvigi, náði loksins að klára grein og endaði í 9. sæti. Hún fór brautina á 1:14,30 mínútu.

Hólmfríður Dóra hefur lokið leik á Vetrarólympíuleikunum en hún keppti einnig í svigi og stórsvigi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×