Skoðun

Garða­bær; blandað bú­setu­form vaxandi mið­bær og sveit í borg

Sigríður Hulda Jónsdóttir skrifar

Í Garðabæ er forgangsverkefni að ljúka Garðatorgi sem glæsilegum miðbæ. Bjóða áfram blandað búsetuform og öflugar tengingar við hverfi og náttúru. Hér má t.d. horfa til Álftaness sem varðveitir sveit í borg og Urriðaholts sem þarf að tengja betur með öruggum stígum.

Garðatorg

Miðbær Garðabæjar er orðinn mjög eftirsóknarverður fyrir fólk og fyrirtæki. Nú er komið að því að horfa á miðbæinn í heild sinni og skapar aðlaðandi og lifandi svæði t.d. mathöll, fjölbreytta þjónustu smærri fyrirtækja, menningarmiðju og afþreyingu. Yfirbyggða bókasafnstorgið gæti t.d. verið grænt svæði með suðrænum blæ, uppákomum og listsýningum. Bæjarstjórn gæti fundað á torginu og stjórnsýslan átt þar opinn samstarfsvettvang við bæjarbúa. Aðkoman á að vera falleg og upplifun af heimsókn í miðbæinn jákvæð.

Mannvænt skipulag og val um búsetuform

Skipulagsmál og mannvirki eru fyrir fólk og eiga því að taka mið af þörfum okkar, umhverfis- og náttúruvernd. Með nýjum hverfum eflum við blandað búsetuform, fjölbreytt hverfi þar sem fólk vill lifa, leika og starfa. Sum hverfi einkennast af þéttleika og nálægð við almenningssamgöngur, önnur eru lágreistari og dreifðari í snertingu við náttúruna. Þetta einkennir bæinn okkar og skapar valfrelsi. Leita þarf leiða til þess að ungt fólk geti keypt sína fyrstu íbúð í Garðabæ og eldra fólk geti búið heima með stuðningi ef það óskar þess.

Hvert hverfi í Garðabæ hefur sinn sjarma og sérstöðu. Álftanes er að mínu mati dásamleg sveit í borg og Urriðaholtið er að verða eitt mest spennandi hverfi höfuðborgarsvæðisins. Öll hverfi eiga að búa yfir góðum útisvæðum og skilvirkum tengingum. Samgöngur eiga að vera nútímalegar, svo og ljósastýringar og lýsing. Hafnafjarðarvegur á að fara í stokk og götur bæjarins að þróast í takti við samgönguvenjur og mannlíf. Í Garðabæ á að vera þægilegt að hjóla eða ganga milli svæða og njóta náttúru.

Sigríður Hulda bæjarfulltrúi í Garðabæ, varaformaður bæjarráðs og formaður skólanefndar. Hún gefur kost á sér í 1. sæti í prófkjöri sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ. Nánari upplýsingar á sigridurhuldajons.is og facebook síðunni Sigríður Hulda 1. sæti.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×