Lífið

Ri­hanna birtir nýja óléttu­mynd á Insta­gram

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Rihanna staðfesti nýlega þann háværa orðróm um að hún eigi von á barni með kærasta sínum A$AP Rocky.
Rihanna staðfesti nýlega þann háværa orðróm um að hún eigi von á barni með kærasta sínum A$AP Rocky. Getty/Tim P. Whitby

Tónlistarkonan og milljarðamæringurinn Rihanna deildi fallegri bumbumynd á Instagram í gær. Síðustu mánuði hefur verið hávær orðrómur um það að tónlistarkonan ætti von á barni með kærasta sínum A$AP Rocky en sá orðrómur var staðfestur nú í vikunni.

Parið tilkynnti óléttuna á óhefðbundinn hátt með myndbirtingu í tímaritinu People. Á myndunum mátti sjá parið rölta saman í Harlem. Rihanna klæddist fráhnepptum jakka til þess að sýna óléttukúluna.

Sjá: Rihanna og A$AP Rocky eiga von á barni

Myndirnar af parinu hafa farið eins og eldur í sinu um netheima og fagna aðdáendur gleðitíðindunum.

Í gærkvöldi birti tónlistarkonan svo fyrstu óléttumyndina á sínu eigin Instagrami. Á myndinni var hún klædd í appelsínugula hanska og íþróttatreyju sem hún lyfti upp svo sjá mátti fallega óléttukúluna.

Í textanum undir myndinni nýtir hún vettvanginn jafnframt til þess að minna á það að „Black History Month“ sé genginn í garð.


Tengdar fréttir

Rihanna og A$AP Rocky eiga von á barni

Söngkonan og milljarðamæringurinn Rihanna á von á sínu fyrsta barni. Hún sýndi kúluna í fyrsta skipti um helgina í Harlem ásamt kærasta sínum A$AP Rocky.

Rihanna gerð að þjóðhetju Barbados

Tónlistarkonan og auðjöfurinn Ríhanna var í dag gerð að þjóðhetju Barbados. Var það gert á athöfn þar sem formlegum tengslum eyríkisins og bresku krúnunnar var formlega slitið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.