Skoðun

Mark­miðið er skýrt

Almar Guðmundsson skrifar

Þegar ég fluttist fyrst í Garðahrepp, nú Garðabæ, bjuggu hér um 4.000 manns. Þá bjuggu um 250 manns í Bessastaðahreppi. Þjónusta sveitarfélaganna tveggja sem nú mynda Garðabæ var eðlilega mun einfaldari í sniðum þá. Nú tæpum 50 árum síðar eru íbúarnir orðnir ríflega 18 þúsund og öll þjónusta og samfélagsgerð er orðin umfangsmeiri og flóknari.

Þegar litið er yfir þennan tíma er augljóst að í öllum aðalatriðum hefur tekist vel að byggja bæinn okkar upp og hefur íbúum fjölgað um 14 þúsund. Forystufólk okkar í gegnum tíðina hefur þannig risið undir því trausti að þróa rekstur bæjarins í takt við þarfirnar og íbúar hafa í könnunum ítrekað staðfest ánægju sína með stöðuna.

Garðabær í fremstu röð

Garðabær er í fremstu röð sveitarfélaga á Íslandi. Ég tel að nokkrir samverkandi þættir skýri þá stöðu. Í fyrsta lagi hefur uppbygging þjónustu og innviða haldist í hendur við uppbyggingu hverfa. Íbúar hafa getað treyst því að skólar, leikskólar og önnur þjónusta þróist í góðum takti við fjölgun íbúa. Í öðru lagi byggir fjármálastjórn bæjarins á lágum álögum á íbúa en á sama tíma góðum rekstri og ábyrgri skuldastefnu. Þetta hefur skilað sér í getu Garðabæjar til að byggja upp nauðsynlega innviði án þess að senda skattgreiðendum framtíðar reikninginn. Í þriðja lagi hefur verið lögð áhersla á góða aðstöðu fyrir skólastarf, íþróttir, útivist, félagsþjónustu og fleiri málaflokka. Þannig er alltaf í forgrunni að fagfólkið okkar hafi góða starfsaðstöðu og tækifæri til að þróa sitt starf til að auka megi gæði og fjölbreytileika, bæjarbúum til heilla.

Ég er klár í slaginn!

Þegar við lítum á stöðuna í dag og til framtíðar er ljóst að mikil uppbygging á sér stað í Garðabæ og er fyrirsjáanlegt að hún haldi áfram á næstu árum. Við sem höfum haft lýðræðislegt umboð bæjarbúa verðum að fara vel með ábyrgðina sem því fylgir. Staðan er vissulega góð en það er alltaf verk að vinna. Það er okkar að varðveita og vinna með þau gildi sem hafa skapað það samfélag sem Garðabær er í dag. Það hefur skilað okkur farsæld og við þurfum áfram að sýna metnað í að byggja upp bæinn okkar. Markmiðið er skýrt - að Garðabær verði áfram í fremstu röð.

Ég gef kost á mér í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ og lýsi mig þannig reiðubúinn í forystuhlutverk. Ég tel mig hafa reynslu, þekkingu og eiginleika til þess að leiða sjálfstæðismenn inn í kosningar í vor þannig að samhent lið vinni þar sigur og endurnýi umboð sitt. Ég er klár í slaginn!

Höfundur er bæjarfulltrúi, framkvæmdastjóri og sækist eftir 1. sæti í prófkjöri sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×