Skoðun

Átta stað­reyndir um leik­skólana í Reykja­vík

Skúli Helgason skrifar

Leikskólastarf í Reykjavík stenst samjöfnuð við það sem best gerist á alþjóðavettvangi og ánægja foreldra með starfið hefur mælst yfir 90% á undanförnum árum sem segir sína sögu. Eftirfarandi staðreyndir tala líka sínu máli um þann árangur sem náðst hefur í leikskólamálum Reykjavíkur:

1. Inntökualdur á leikskóla í Reykjavík hefur lækkað jafnt og þétt á síðustu árum. Öll börn sem náð höfðu 18 mánaða aldri fengu boð um leikskólapláss síðastliðið haust – en til samanburðar var börnum sem voru 24 mánaða og eldri boðið leikskólapláss haustið 2017. Þetta hefur tekist þrátt fyrir metfjölgun í Reykjavík þar sem íbúum hefur fjölgað um 10 þúsund manns á 4 árum.

2. Á kjörtímabilinu hefur 31 ungbarnadeild verið opnuð á leikskólum í Reykjavík.

3. Samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands er aðeins eitt sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu þar sem hærra hlutfall barna á öðru aldursári er á leikskóla en í Reykjavík. Það er í Garðabæ.

4. Yfir 90% leikskólabarna í Reykjavík sækja leikskóla í sínu hverfi.

5. Reykjavík er með lægstu leikskólagjöldin af 15 stærstu sveitarfélögum á Íslandi og þannig hefur það verið á hverju einasta ári þessa kjörtímabils samkvæmt könnunum ASÍ. Forgangshópar njóta mun lægri leikskólagjalda í Reykjavík og það eru meðal annars öryrkjar, námsfólk og einstæðir foreldrar.

6. Frá árinu 2021 hefur Reykjavík veitt 100% systkinaafslátt af leikskólagjöldum – sem þýðir að foreldrar greiða aldrei fyrir meira en eitt barn í einu á borgarreknum leikskólum.

7. Á síðustu árum hefur Reykjavíkurborg varið meira en 4 milljörðum til að bæta faglegt vinnuumhverfi og starfsaðstæður á leikskólum. Kjör starfsfólks hafa batnað á sama tíma en þetta eru fjárframlög umfram kjarasamninga og þar hefur Reykjavík haft algjöra sérstöðu í samanburði við önnur sveitarfélög. Eitt af stærstu viðfangsefnunum er að leita allra leiða til að fjölga leikskólakennurum og það er sem betur fer fjölgun í kennaranám allra síðustu árin. Við munum áfram vinna með ríki og háskólunum í að hvetja ungt fólk til að sækja sér þessa mikilvægu menntun.

8. Börnum á hvern starfsmann hefur fækkað á leikskólum Reykjavíkur í tengslum við ákvörðun borgarinnar um 7% fækkun rekstrarleyfa og fjölgun stöðugilda á elstu deildum leikskólanna.

Frá áætlun til aðgerða

Þetta eru staðreyndir sem skipta máli í umræðunni. Sá árangur sem náðst hefur byggir á markvissum aðgerðum núverandi meirihluta í borgarstjórn og aðgerðaáætluninni Brúum bilið sem var samþykkt vorið 2018. Vegna mikillar fólksfjölgunar í Reykjavík og fjölgunar fæðinga á síðustu misserum verður Brúum bilið verkefnið tvöfaldað að umfangi sem birtist meðal annars í því að mörg hundruð ný leikskólapláss bætast við bara á þessu ári. Það þýðir að strax á þessu ári mun inntökualdur á leikskóla Reykjavíkur lækka frekar, fleiri börn á öðru aldursári komast að og enn hærra hlutfall fá leikskólapláss í sínu hverfi.

En það er efni í aðra grein og verður kynnt á næstu dögum.

Höfundur er formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar og frambjóðandi til 3. sætis í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×