Heilsa

Hreyfum okkur saman: Flæðandi styrktarþjálfun

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Anna Eiríks hefur starfað við þjálfun frá 18 ára aldri.
Anna Eiríks hefur starfað við þjálfun frá 18 ára aldri. Hreyfum okkur saman

Í sjöunda þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks góða styrktaræfingu. Hörkugóð æfing þar sem unnið er með eitt handlóð eða ketilbjöllu.

Hver æfing er gerð í 45 sekúndur og þaðan farið beint í næstu æfingu. Æfing sem styrkir líkamann. Anna notar handlóð í æfingunni en það er einnig hægt að nota ketilbjöllu eða fullan vatnsbrúsa. 

Líkt og alltaf er æfingin gerð á dýnu. Hún er í kringum fimmtán mínútur en þeir sem vilja meiri áskorun geta gert æfinguna oftar en einu sinni, eða bætt við eldri heimaæfingu. Fyrstu sex þættina af Hreyfum okkur saman má finna HÉR á Vísi.

Í þáttunum Hreyfum okkur saman fer Anna Eiríks yfir einfaldar æfingar sem hægt er að gera heimavið. Þættirnir koma út á mánudögum og fimmtudögum á Vísi og Stöð 2+.


Tengdar fréttir

Hreyfum okkur saman: Styrktaræfingar með ketilbjöllu

Í sjötta þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks heimaæfingu með ketilbjöllu. Það er þó auðvitað líka hægt að gera æfinguna með handlóði eða annari þyngd ef þú átt ekki ketilbjöllu á heimilinu.

„Gerir mér kleift að lifa lífinu mínu til hins ítrasta“

„Hreyfum okkur saman eru stuttir fimmtán mínútna æfingaþættir fyrir alla sem hafa heilsu til. Æfingarnar eru fjölbreyttar og er markmiðið með þessu þáttum klárlega að fá sem flesta landsmenn til að hugsa betur um heilsuna og hreyfa sig smá á hverjum degi,“ segir Anna Eiríksdóttir þáttastjórnandi æfingaþáttanna. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.