Íslenskur stuðningur við opnun skóla í Úganda Heimsljós 27. janúar 2022 14:01 Gunnisal Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að verja fjörutíu milljónum króna til að styðja við menntun barna í Úganda. Hvergi í heiminum hafa skólar lengur verið lokaðir en bæði börn og unglingar hafa ekki setið á skólabekk um tveggja ára skeið, frá því heimsfaraldur kórónuveirunnar hófst í mars 2020. Kennsla hófst víða á ný um miðjan þennan mánuð. Menntamálaráðuneyti Úganda gerir kröfu um að skólar setji upp viðunandi hreinlætisaðstöðu fyrir nemendur og kennara í kjölfar opnunarinnar. Til að aðstoða skóla við hefja kennslu hefur Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) áform um að leggja til hreinlætisvörur til skólanna í því skyni að uppfylla kröfur stjórnvalda og sporna gegn útbreiðslu COVID-19. Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið, gegnum sendiráð Íslands í Kampala, að styðja við framtak UNICEF eftir að beiðni barst frá stofnuninni um að taka þátt í þessu stóra verkefni. Grunn- og framhaldsskólar í Úganda eru tæplega fjórtán þúsund talsins, nemendur um fimmtán milljónir. Að mati sendiráðsins í Kampala er stuðningur við opnun skóla í landinu afar mikilvægt verkefni og vilji til þess að koma til móts við hreinlætiskröfur stjórnvalda. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Úganda Skóla - og menntamál Mest lesið „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Stór skjálfti í Bárðarbungu Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Innlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent
Menntamálaráðuneyti Úganda gerir kröfu um að skólar setji upp viðunandi hreinlætisaðstöðu fyrir nemendur og kennara í kjölfar opnunarinnar. Til að aðstoða skóla við hefja kennslu hefur Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) áform um að leggja til hreinlætisvörur til skólanna í því skyni að uppfylla kröfur stjórnvalda og sporna gegn útbreiðslu COVID-19. Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið, gegnum sendiráð Íslands í Kampala, að styðja við framtak UNICEF eftir að beiðni barst frá stofnuninni um að taka þátt í þessu stóra verkefni. Grunn- og framhaldsskólar í Úganda eru tæplega fjórtán þúsund talsins, nemendur um fimmtán milljónir. Að mati sendiráðsins í Kampala er stuðningur við opnun skóla í landinu afar mikilvægt verkefni og vilji til þess að koma til móts við hreinlætiskröfur stjórnvalda. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Úganda Skóla - og menntamál Mest lesið „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Stór skjálfti í Bárðarbungu Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Innlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent