Erlent

Tongverjar staðráðnir í að klára enduruppbyggingu

Samúel Karl Ólason skrifar
Eyjur Tonga eru þakktar ösku og vatnsból eru menguð.
Eyjur Tonga eru þakktar ösku og vatnsból eru menguð. AP/Maxar Technologies

Hjálparstarf á Tonga er að taka á sig mynd en ríkisstjórn eyjaklasans segir drykkjarvatn í forgangi. Vika er liðin frá því að stærðarinnar sprengigos olli miklum skemmdum á eyjunum svo minnst þrír dóu og tvö þorp þurrkuðust út.

Íbúar Tonga standa frammi fyrir gífurlega umfangsmiklu hreinsunarstarfi en flóðbylgjan sem skall á eyjunum er talin hafa haft áhrif á meira en 80 prósent þeirra. Öskufallið hefur áhrif á þau öll en drykkjarból eyjanna eru menguð af bæði ösku og sjó. Hamfarirnar höfðu einnig slæm áhrif á uppskeru á eyjunum.

Ríkisstjórn Tonga hefur lýst hamförunum sem fordæmalausum og er búið að lýsa yfir mánaðar neyðarástandi.

Til stendur að flytja íbúa sem misstu heimili sín þegar allt að fimmtán metra há flóðbylgja skall á eyjunum til höfuðborgar Tongo vegna skorts á drykkjarvatni og matvælum. Það gæti þó reynst erfitt þar sem fjarskipti á svæðinu eru enn stopul. Það sama má segja um samgöngur en öskufallið hefur skemmt báta og stöðvað flugferðir.

Aðstoð hefur borist frá Ástralíu og Nýja-Sjálandi en ótti íbúa Tonga við kórónuveiruna hefur komið niður á hjálparstarfi. Kórónuveiran hefur hingað til ekki teygt anga sína til eyjaklasans, nema einu sinni, og ríkisstjórn Tonga vill halda því þannig.

Íbúar Tonga munu því ekki eiga í samskiptum við hermenn Ástralíu og Nýja-Sjálands sem flytja birgðir og búnað til eyjanna. Fólk sem vill fara til Tonga þarf fyrst að fara í þriggja vikna einangrun og vörubretti eru geymd í 72 klukkustundir áður en yfirvöld á Tonga dreifa birgðum til íbúa.

Þrátt fyrir erfiðleikana segjast íbúar Tonga staðráðnir í því að klára endurbygginguna og koma lífi sínu í eðlilegt horf aftur.

Hér má sjá mynd af Nomuka sem tekin var í ágúst 2020.AP/Maxar Technologies

Þessi mynd af Nomuka var tekin þann 20. janúar.AP/Maxar Technologies

Tengdar fréttir

Covid gerir hjálparstarf á Tonga flókið

Skip sjóhers Nýja-Sjáland kom til hafnar í Tonga-eyjum í morgun. Þar um borð voru 250 þúsund lítrar af drykkjarvatni og öðrum nauðsynlegum birgðum. Um borð í HMNZS Aotearoa er einnig búnaður sem hægt er að nota til að eima sjötíu þúsund lítra af vatni á dag.

Fyrsta flug­vélin með hjálpar­gögnum komin til Tonga

Fyrsta flutningavélin með hjálpargögn er nú lent á flugvellinum á Tonga. Vélin er með drykkjarvatn og fleiri nauðsynjar en þessi afskekkti eyjaklasi varð illa útí í eldgosi sem hófst um síðustu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×