Erlent

Covid gerir hjálparstarf á Tonga flókið

Samúel Karl Ólason skrifar
Neyðarbirgðum komið fyrir í flugvél hers Ástralíu.
Neyðarbirgðum komið fyrir í flugvél hers Ástralíu. AP/LACW Kate Czerny

Skip sjóhers Nýja-Sjáland kom til hafnar í Tonga-eyjum í morgun. Þar um borð voru 250 þúsund lítrar af drykkjarvatni og öðrum nauðsynlegum birgðum. Um borð í HMNZS Aotearoa er einnig búnaður sem hægt er að nota til að eima sjötíu þúsund lítra af vatni á dag.

Gríðarlega kröftugt sprengigos í nálægu eldfjalli sendi ösku og flóðbylgjur yfir eyjaklasann og eru vatnsból menguð. Flóðbylgjurnar ollu líka miklum skemmdum og er vitað til þess að minnst þrír eru látnir.

Í frétt Reuters er haft eftir Branko Sugar að unnið sé að því að hreinsa vatnsból en það gangi erfiðlega. Það sé þeirra eina drykkjarvatn og sé mengað. Þá eigi fólk erfitt með andardrátt vegna allrar öskunnar sem liggur yfir eyjunum.

Sjá einnig: Eins og fimm hundr­uð kjarn­ork­usprengj­ur hafi sprung­ið í einu

Hjálparstarfið til Tonga þykir tiltölulega flókið en snúa þurfti einni flugvél aftur til Ástralíu vegna þess að einn þar um borð greindist með Covid-19. Hingað til hefur kórónuveiran ekki teygt anga sína til Tonga og vonast yfirvöld þar til þess að halda veirunni fjarri.

Því þurfa hjálparstörfin í raun að vera snertilaus.

Skemmdirnar á Tonga eru miklar.AP/Marian Kupu

Ríkisstjórn Tonga lét snúa flugvélinni við þrátt fyrir að ríkisstjórn Ástralíu hafði heitið því að hægt væri að veita hjálparstarf í senn draga úr líkum á útbreiðslu kórónuveirunnar. Áhöfnin hafði skilað inn neikvæðum hraðprófum en einn greindist smitaður í PCR-prófi.

Samkvæmt frétt Guardian voru birgðirnar í flugvélinni færðar yfir í aðra flugvél og henni flogið af stað til Tonga í morgun.


Tengdar fréttir

Fyrsta flug­vélin með hjálpar­gögnum komin til Tonga

Fyrsta flutningavélin með hjálpargögn er nú lent á flugvellinum á Tonga. Vélin er með drykkjarvatn og fleiri nauðsynjar en þessi afskekkti eyjaklasi varð illa útí í eldgosi sem hófst um síðustu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×