United að vinna en Ronaldo eins og smástrákur í fýlu þegar hann var tekinn af velli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. janúar 2022 09:30 Cristiano Ronaldo tókst ekki að skora áður en hann var tekinn af velli og var ekki sáttur. AP/Matt Dunham Cristiano Ronaldo var allt annað en sáttur þegar hann þurfti að víkja á 71. mínútu í leik Manchester United og Brentford í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi
Ronaldo kvartaði mikið eftir skiptinguna og sýndi öllum sem vildu sjá hversu óánægður hann var. Hann var búinn að missa af tveimur síðustu leikjum liðsins vegna meiðsla. View this post on Instagram A post shared by Bleacher Report Football (@brfootball) Ralf Rangnick sagði eftir leikinn að það væri eðlilegt að 36 ára leikmaður hagaði sér svona eftir að hafa verið tekinn af velli þegar lið hans er að vinna 2-0. Hann var eins og smástrákur í fýlu. Það eru örugglega allir ósáttir við að vera teknir af velli en flestir fela það nú betur en Ronaldo. Lykilatriðið var örugglega að Ronaldo hafði ekki tekist að skora þótt að Manchester United væri komið í 2-0 með mörkum Anthony Elanga og Mason Greenwood. Marcus Rashford skoraði síðan þriðja markið í þessum 3-1 sigri eftir að Ronaldo var farinn af velli. Þetta var í fjórða skiptið sem Ronaldo var tekinn af velli í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu en í fyrsta sinn sem hann hafði ekki skorað mark þegar hann yfirgaf völlinn. Ronaldo var með mark og stoðsendingu á móti Tottenham áður en hann var tekinn út af, hann skoraði tvö mörk á móti Arsenal áður en hann þurfti að yfirgefa völlinn og hann var með mark og stoðsendingu áður en hann fór af velli á 90. mínútu á móti Burnley. Áhorfendur náði myndbandi af Ronaldo þegar hann kom af velli og sjónvarpsvélarnar voru líka á honum. Það má sjá það myndband hér fyrir neðan sem og fleiri myndir af honum hér fyrir ofan. View this post on Instagram A post shared by ESPN FC (@espnfc)
Enski boltinn Mest lesið Kennir kynlífi með kærastanum um að hún féll á lyfjaprófi Sport Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ Körfubolti Íslandsmethafinn segir enga virðingu borna fyrir íþróttafólkinu: „Út í hött“ Sport Missti tönnina, tók hana upp og fór í bikarúrslit Handbolti Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Íslenski boltinn Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Körfubolti Annar keppandi stal skíðum Fróða á HM Sport Ólympíufari dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir barnaníð Sport Leik lokið: Fram - Valur 22-20 | Fram í bikarúrslit Handbolti „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Enski boltinn Fleiri fréttir Echeverri má loks spila fyrir Man City „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Chelsea skrapaði botninn með Southampton Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Sjá meira