Brentford býður Eriksen samning Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. janúar 2022 16:02 Christian Eriksen hefur leikið 109 landsleiki fyrir Danmörku og skorað 36 mörk. Fjögur þeirra komu gegn Íslandi. ap/Stuart Franklin Enska úrvalsdeildarliðið Brentford ætlar að bjóða Christian Eriksen samning.
The Athletic greinir frá þessu. Samkvæmt heimildum vefmiðilsins hefur Brentford boðið Eriksen sex mánaða samning með möguleika á eins árs framlengingu. EXCLUSIVE | Brentford are in talks with Christian Eriksen over a return to the Premier League.The Athletic understands that Brentford have offered the 29-year-old a six-month deal with the option to extend for a further year.More from @jaydmharris— The Athletic UK (@TheAthleticUK) January 17, 2022 Hinn 29 ára Eriksen hefur ekkert spilað síðan hann fór í hjartastopp í leik Danmerkur og Finnlands á EM 12. júní í fyrra. Hann fékk samningi sínum við Inter rift í síðasta mánuði en reglur ítalska knattspyrnusambandsins heimiluðu honum ekki að spila með gangráðinn sem var græddur í hann eftir hjartastoppið. Eriksen þekkir vel til í ensku úrvalsdeildinni en hann lék með Tottenham á árunum 2013-2020, alls 305 leiki. Í þeim skoraði hann 69 mörk. Brentford er með sterka tengingu við Danmörku. Knattspyrnustjóri liðsins, Thomas Frank, er Dani og nokkrir danskir leikmenn eru í röðum Brentford sem er í 14. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Næsti leikur liðsins er gegn Manchester United á miðvikudaginn.
Enski boltinn Mest lesið Ítölsk stelpa ferðaðist 1.800 kílómetra til að sjá Jón Axel Körfubolti „Hætti þessari fortíðarþráhyggju minni með Vestmannaeyjar“ Handbolti Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Enski boltinn Skalf meðan hann lagði Carlsen: „Þetta var algjörlega galið“ Sport Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Enski boltinn „Skil bara ekki að KSÍ leyfi þetta“ Íslenski boltinn „Gott að sjá honum blæða á vellinum“ Körfubolti Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Enski boltinn Dagskráin í dag: Bónus, Besta og Stúkan á sumardaginn fyrsta Sport Pjakkarnir erlendis þegar KR mætir Blikum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Snýr aftur eftir lungnabólguna Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Dramatík í Manchester United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Sjá meira