Í öðru sæti er Íslandsbanki en eðli málsins samkvæmt hefur mikið verið fjallað um bankann í tengslum við skráningu hans á markað. Þá er Icelandair í þriðja sæti enda hefur mikið farið fyrir fréttum um ferðatakmarkanir og flugsamgöngur.
Ef litið er á fréttaumfjöllun síðustu viku er Kauphöllin í efsta sæti. Á síðum Innherja var meðal annars fjallað um sögulega lága veðtöku í Kauphöllinni, sjóðinn IS EQUUS Hlutabréf í rekstri Íslandssjóða sem var með hæstu ávöxtun allra hlutabréfasjóða á árinu 2021 og einnig fjórfjöldun á innflæði í hlutabréfasjóði í fyrra. Í öðru sæti er Icelandair, meðal annars vegna ráðninga í stjórnunarstöður, og Íslandsbanki er í því þriðja.
Innherji, í samstarfi við Creditinfo, mun birta topplista félaga sem hafa oftast komið fyrir í fréttum þá vikuna.