Innlent

„Kölluðum þetta bara líkamsrækt dagsins“

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Frá vettvangi í gær. Engan sakaði alvarlega.
Frá vettvangi í gær. Engan sakaði alvarlega. Aðsend

Björgunarsveitarfólk þurfti að handlanga gríðarlegt magn af frosnum fiski úr flutningabíl sem valt á hliðina norður af Leirvogstunguhverfi í Mosfellsbæ seint í gærkvöld, þar sem ekki var hægt að afferma bílinn með eðlilegum hætti. Aðgerðir stóðu yfir frá klukkan 23 í gærkvöld til um sjö í morgun, í myrkri og óveðri.

„Það var gríðarlega mikill fiskur í bílnum og aðstæður ekki þær bestu. Það var hálka til að byrja með en svo var saltað á svæðinu. Það þurfti að koma verðmætunum úr bílnum, sem var þarna á hlið fyrir utan veginn, og koma þeim á bretti og í kör. Það tók tíma en gekk mjög vel, við vorum bara í röð og réttum á milli en höfðum gaman að og kölluðum þetta bara líkamsrækt dagsins,” segir Sigurbjörg Metta Sigurjónsdóttir, björgunarsveitarmaður hjá Hjálparsveit skáta í Kópavogi.

Flutningabíllinn valt á hliðina eftir að hafa rekist utan í fólksbíl vegna hálku. Bílstjórinn var fluttur með minniháttar áverka á slysadeild en ökumann fólksbílsins sakaði ekki. Sigurbjörg segir að aðgerðirnar hafi vissulega reynst þolraun en að þær hafi gengið vel. Allar björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar til og þegar mest lét voru um þrjátíu manns að störfum.

„Þetta fór að taka í eftir smá tíma enda voru margir sem stóðu þarna í nokkra klukkutíma, og voru komnir þarna á færibandið eins og þeir hefðu einhvern tímann unnið við slíkt,“ segir hún. „Stemningin við að koma heim eftir útkallið var svolítið svoleiðis, að taka öll fötin og setja í þvottavél til að losna við fiskilyktina. Það var allavega þannig fyrir mig, að rifja upp þá tíma sem maður vann í fiskvinnslu sjálfur.“

Allt kapp var lagt á að bjarga því sem bjarga var en óljóst er hversu mikill fiskur skemmdist.

„Það var eitthvað sem fór á hliðina og úr þessum kössum, en það sem við sáum var tiltölulega lítið miðað við það sem maður hefði búst við, þannig að það var mjög mikil verðmætabjörgun í þessari aðgerð,” segir Sigurbjörg.


Tengdar fréttir

Flutninga­bíll fullur af fiski valt á hliðina

Flutningabíll fullur af fiski endaði utan vegar eftir árekstur í Mosfellsbæ í gærkvöldi. Ökumaður flutningabílsins var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×